Ferill 255. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 337  —  255. mál.




Fyrirspurn


til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um skýrsluskil um loftslagsmál.

Frá Degi B. Eggertssyni.


     1.      Hver er nákvæm lagaskylda stjórnvalda varðandi tíðni og framlagningu stöðuskýrslu verkefnisstjórnar um framgang aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum skv. 4. mgr. 5. gr. laga um loftslagsmál, nr. 70/2012, og hvenær hyggst ráðherra leggja fram slíka skýrslu næst?
     2.      Hverjar eru ástæður þess að slík skýrsla hefur ekki verið birt undanfarin misseri og telur ráðherra að lögbundin eftirfylgni hafi verið fullnægjandi á því tímabili?
     3.      Hver er lagaskylda Umhverfis- og orkustofnunar varðandi árlega skýrslugjöf skv. 4. mgr. 5. gr. c fyrrnefndra laga? Hafa árlegar skýrslur verið unnar síðustu tvö ár og eru þær opinberar? Ef svo er ekki, af hvaða ástæðum?
     4.      Hver er lagaskylda um tímasetningar eða endurskoðun á vísindaskýrslu um áhrif loftslagsbreytinga á Íslandi skv. 5. gr. d fyrrnefndra laga og hvenær má vænta næstu útgáfu?
     5.      Telur ráðherra þörf á að breyta verklagi, ábyrgðarskiptingu eða umgjörð eða reglugerðum sem varða t.d. ábyrgð verkefnisstjórnar til að tryggja að lögbundin skýrsluskil verði framvegis reglubundin, gagnsæ og aðgengileg Alþingi og almenningi?
     6.      Telur ráðherra tilefni til að birta skýrt á einum stað heildaryfirlit yfir þær skuldbindingar sem Ísland hefur undirgengist í loftslagsmálum og tölulega greiningu á því hvernig miðar að ná settum markmiðum?
     7.      Hvert er hlutverk loftslagsráðs varðandi framangreint að mati ráðherra?


Skriflegt svar óskast.