Ferill 183. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 364  —  183. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Isaksen um stöðu NEET-hópsins og úrræði í heilbrigðiskerfinu.


     1.      Hversu margir einstaklingar á aldrinum 18–29 ára teljast til NEET-hópsins (ekki í vinnu, virkni eða námi) samkvæmt gögnum ráðuneytisins fyrir árið 2024 og árið 2025?
    Stofnanir ráðuneytisins veita einstaklingum, sem tilheyra NEET-hópnum og eru í þörf fyrir meðferð og endurhæfingu, þjónustu innan heilbrigðiskerfisins. Ýmsir sjúkdómar geta orðið til þess að einstaklingur eigi í erfiðleikum með að stunda vinnu, virkni eða nám og eru vísbendingar um að allt að 5% ungmenna falli undir NEET-skilgreininguna. Í sjúkraskrárkerfi og gagnasöfnun sem tengist starfsemi stofnana heilbrigðisráðuneytis er lögð áhersla á upplýsingasöfnun sem tengist heilbrigðisvanda og sjúkdómaflokkun (ICD-10). Ekki er haldið utan um atvinnu- eða námsstöðu einstaklinga sem sækja heilbrigðisþjónustu hjá stofnunum ráðuneytisins þar sem NEET er ekki sjúkdómsgreining heldur lýsing á virknistöðu einstaklingsins. Því er breytilegt milli stofnana ráðuneytisins hvernig þessar upplýsingar eru teknar út með viðeigandi breytum.
    Meðfylgjandi tafla sýnir þann fjölda sem fékk þjónustu á vegum geðsviðs Landspítala ásamt því að vera örorkulífeyrisþegi á aldrinum 18–29 ára árið 2024 og það sem af er árinu 2025. Árið 2024 voru samtals 489 örorkulífeyrisþegar á aldrinum 18–29 ára sem fengu þjónustu innan geðsviðs Landspítala sem gætu fallið undir NEET-skilgreininguna. Það sem af er ári hafa 470 einstaklingar í sama hópi fengið þjónustu. Taflan sýnir hvernig sú tala skiptist í 5 ára aldursflokka og milli þjónustuforma (legudeild, dag-/göngudeild eða bráðamóttaka).

Ár útskriftar Gjaldskrárflokkur SÍ á þjónustutíma Aldursflokkur Fjöldi kt. Fjöldi lega Fjöldi koma á dag-/göngudeild eða bráðamóttöku
2024 Örorkulífeyrisþegi 18–19 ára 34 37 576
2024 Örorkulífeyrisþegi 20–24 ára 195 150 4.112
2024 Örorkulífeyrisþegi 25–29 ára 260 174 5.864
Samtals 489 361 10.552
2025 Örorkulífeyrisþegi 18–19 ára 38 30 428
2025 Örorkulífeyrisþegi 20–24 ára 186 175 3.775
2025 Örorkulífeyrisþegi 25–29 ára 246 133 4.808
Samtals 470 338 9.011

    Samkvæmt gögnum frá almennum geðheilsuteymum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) er áætlað að 10–15% af þeim 654 skjólstæðingum sem fengu meðferð hjá teymunum árið 2024 hafði verið einstaklingar sem falla undir skilgreiningu NEET-hópsins. Gera má ráð fyrir að hlutfallið sé um 10% árið 2025. HH hefur ekki tölfræðileg gögn um þá sem nýttu sér aðra heilbrigðisþjónustu á heilsugæslustöðvum og falla undir skilgreininguna.

     2.      Hvaða úrræði standa nú til boða í heilbrigðiskerfinu fyrir þennan hóp eftir að samningur við Janus endurhæfingu rann út?
    Ekki er ástæða fyrir einstaklinga sem falla undir NEET-skilgreininguna til að sækja heilbrigðisþjónustu eingöngu vegna þess að viðkomandi er ekki í vinnu, virkni eða námi. Hins vegar geta ýmsir sjúkdómar, t.d. geðrænar áskoranir, orðið til þess að einstaklingur eigi í erfiðleikum með að stunda vinnu, virkni eða nám og falli þar af leiðandi undir fyrrnefnda skilgreiningu. Sú meðferð og endurhæfing sem stendur fólki til boða innan geðheilbrigðisþjónustunnar miðar að því að mæta lífsálfélagslegum þörfum notenda, þ.m.t. þeim sem falla undir NEET-skilgreiningu.
    Heilbrigðisráðuneytið hefur haldið áfram samstarfi sínu við VIRK, meðferðareiningu lyndisraskana á Landspítala og geðheilsuteymi heilsugæslunnar til að tryggja framhald þjónustu við þá einstaklinga sem áður fengu samþætta heilbrigðis- og starfsendurhæfingu hjá Janusi endurhæfingu. Eins og kunnugt er var skrifað undir samningslok við Janus endurhæfingu í byrjun nóvember 2024. Frá því að þríhliða samningur milli Sjúkratrygginga Íslands, VIRK og Janusar endurhæfingar rann út í maílok hefur Hringsjá sinnt hópnum. Unnið er að gerð nýs þríhliða samnings þar sem nýtt úrræði innan Hringsjár, Víðsjá, tekur við þeim hópi sem þarf samþætta heilbrigðis- og starfsendurhæfingu. Þjónusta á vegum heilbrigðisráðuneytis, VIRK og Hringsjár hefur starfað frá því 1. september 2025. Jafnframt hafa þeir einstaklingar getað sótt þjónustu á göngudeild lyndisraskana á Landspítala.

     3.      Hversu margir einstaklingar þiggja þjónustu í þeim úrræðum sem komið hafa í staðinn og hvernig skiptast þeir niður á landshluta?
    Þann 1. júní sl. tók VIRK við þjónustu við hópinn og hófu 32 einstaklingar, sem áður voru í þjónustu á vegum Janusar endurhæfingar, þátttöku í Hringsjá í kjölfar þess að samningurinn við Janus endurhæfingu rann út. Í Hringsjá eru samtals 108 einstaklingar í þjónustu sem tilheyra NEET-hópi og eru allir nema fjórir búsettir á höfuðborgarsvæðinu. Þar af eru 37 einstaklingar í Víðsjá, samþættri heilbrigðis- og starfsendurhæfingu innan Hringsjár.

     4.      Hver er áætlaður kostnaður ríkisins við þessi nýju úrræði fyrir árið 2025 og árið 2026?
    Nýr þríhliða samningur við Hringsjá um þjónustu við einstaklinga í NEET-hópi með geðrænar áskoranir byggist á sama fyrirkomulagi og fyrri samningur, þar sem hlutur heilbrigðiskerfisins er 25%. Heildarkostnaður á mánuði fyrir úrræðið er 14,8 millj. kr., þar af er hlutur heilbrigðiskerfisins 3,7 millj. kr. Árið 2025 er áætlaður kostnaður við nýtt úrræði, Víðsjá, um 15 millj. kr. og 44,5 millj. kr. árið 2026.