Ferill 271. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 376 — 271. mál.
Fyrirspurn
til innviðaráðherra um hálkuvarnir og helmingamokstur.
Frá Ingvari Þóroddssyni.
1. Hver ber ábyrgð á hálkuvörnum á vegum þar sem vetrarþjónustu er sinnt samkvæmt reglu Vegagerðarinnar um helmingamokstur?
2. Hver hefur kostnaðurinn við hálkuvarnir verið síðustu þrjú ár á vegum þar sem vetrarþjónustu er sinnt samkvæmt reglu Vegagerðarinnar um helmingamokstur? Hvernig hefur sá kostnaður skipst milli ríkis og sveitarfélaga?
Skriflegt svar óskast.