Ferill 243. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 392  —  243. mál.




Svar


félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um upplýsingafulltrúa.


     1.      Eru upplýsingafulltrúar eða samskiptastjórar starfandi í ráðuneytinu? Ef svo er, hversu margir eru þeir?
    Einn upplýsingafulltrúi er starfandi í félags- og húsnæðismálaráðuneyti.

     2.      Eru upplýsingafulltrúar eða samskiptastjórar starfandi hjá undirstofnunum ráðuneytisins? Svar óskast sundurliðað eftir stofnunum.
    Upplýsingafulltrúi eða samskiptastjóri er ekki starfandi hjá Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, embætti ríkissáttasemjara, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, úrskurðarnefnd velferðarmála og Sjónstöðinni.
    Upplýsingafulltrúi eða samskiptastjóri er starfandi hjá Tryggingastofnun, umboðsmanni skuldara, Vinnueftirlitinu (0,8 stöðugildi) og Vinnumálastofnun. Hjá Skipulagsstofnun starfar verkefnastjóri kynningarmála.

     3.      Er upplýsinga- eða samskiptadeild starfrækt í ráðuneytinu eða undirstofnunum þess? Ef svo er, er óskað eftir upplýsingum um fjölda starfsmanna á deildunum undanfarin tíu ár, sundurliðað eftir árum og stofnunum.
    Ekki er starfrækt upplýsinga- eða samskiptadeild í félags- og húsnæðismálaráðuneyti, hjá Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, embætti ríkissáttasemjara, umboðsmanni skuldara, úrskurðarnefnd velferðarmála, Vinnueftirlitinu, Vinnumálastofnun og Sjónstöðinni.
    Hjá Tryggingastofnun tók til starfa fyrr á árinu svið samskipta- og þjónustustjórnunar, sem sér m.a. um vefinn tr.is, Mínar síður, fræðslunámskeið og kynningar, samfélagsmiðla, útgefið efni, þjónustustjórnun, þjónustumiðstöð, skiptiborð, erindi og skjalavörslu. Stöðugildi eru sex. Á árunum 2022–2025 var starfrækt samskiptasvið með fjögur stöðugildi.
    Hjá Skipulagsstofnun er starfrækt svið stefnumótunar og miðlunar sem vinnur að gerð og eftirfylgni landsskipulagsstefnu og strandsvæðisskipulags og gerð raflínuskipulags. Einnig er það á ábyrgð sviðsins að halda utan um miðlun á efni stofnunarinnar og útgáfu leiðbeininga á sviði skipulagsmála og umhverfismats. Sviðið hefur starfað í núverandi mynd frá árinu 2020 og starfsmenn þar eru fjórir.