Ferill 163. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 394 — 163. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni um örorkubyrði lífeyrissjóða.
1. Hvert var framlag ríkisins til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða árin 2005 til 2025? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
Í meðfylgjandi töflu sést sundurliðað framlag ríkisins til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða samkvæmt upplýsingum úr ríkisreikningi 2007–2024 og fjárlögum fyrir árið 2025.
Á árunum 2005 og 2006 fór fram undirbúningur að framkvæmd framlagsins. Unnið var að því að skilgreina tryggingafræðilegar forsendur og móta reiknireglu til úthlutunar milli sjóða, m.a. á grundvelli hlutfalls örorkulífeyrisgreiðslna og örorkuskuldbindinga sjóðanna. Í kjölfarið var samið um útfærslu fyrirkomulagsins milli ríkisins og aðila vinnumarkaðarins. Því var ekki greitt framlag árin 2005 og 2006 heldur hófust greiðslur fyrst árið 2007 þegar ákvæði um jöfnunarframlag voru fest í lög um tryggingagjald og fjármögnun þess tryggð með tiltekinni hlutdeild í almenna tryggingagjaldinu.
| Ár | Millj. kr. | Ár | Millj. kr. | Ár | Millj. kr. | Ár | Millj. kr. | Ár | Millj. kr. |
| 2007 | 963 | 2011 | 2.447 | 2015 | 3.303 | 2019 | 4.968 | 2023 | 6.785 |
| 2008 | 1.514 | 2012 | 2.698 | 2016 | 3.614 | 2020 | 5.130 | 2024 | 6.896 |
| 2009 | 2.259 | 2013 | 2.822 | 2017 | 4.109 | 2021 | 4.845 | 2025 | 4.507 |
| 2010 | 2.644 | 2014 | 3.072 | 2018 | 4.540 | 2022 | 5.568 | Samtals | 68.105 |
2. Hvernig skiptist framlag ríkisins til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða milli lífeyrissjóða árin 2005 til 2025, í krónum talið og hlutfallslega, með vísan til núgildandi reglugerðar nr. 1540/2024 og eldri reglugerða um úthlutun og greiðslu fjárframlags til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða? Svar óskast sundurliðað eftir árum og lífeyrissjóðum.
Framlagið byggist á upplýsingum ríkisreiknings um áætlaðan gjaldstofn tryggingagjalds næstliðins árs. Skipting framlagsins milli lífeyrissjóða byggist á útreikningum í samræmi við VI. kafla laga um tryggingagjald, nr. 113/1990. Á hverju ári setur ráðherra reglugerð sem kveður á um skiptingu og úthlutun fjárframlagsins vegna næstliðins árs og leiðréttingu, ef þörf er á, vegna endurreiknings fjárframlags ársins á undan á grundvelli endurskoðaðra upplýsinga um gjaldstofn tryggingagjalds þess árs. Vakin er athygli á því að úthlutun 2025 hefur ekki farið fram. Skipting framlagsins í krónum talið og hlutfallslega er sýnd í fylgiskjölum I og II.
3. Hver var örorkubyrði lífeyrissjóða sem lá til grundvallar úthlutun jöfnunarframlags árin 2005 til 2025 með vísan til núgildandi reglugerðar nr. 1540/2024 og eldri reglugerða um úthlutun og greiðslu fjárframlags til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða? Svar óskast sundurliðað eftir árum og lífeyrissjóðum.
Skipting fjárframlagsins á árunum 2007–2024 miðaðist annars vegar við greiddan örorkulífeyri og hins vegar við örorkulífeyrisskuldbindingar sem voru umfram 10% af framtíðarlífeyrisskuldbindingum vegna væntanlegra iðgjalda. Meðaltal af þessu tvennu myndaði hlutfallið sem lagt var til grundvallar að skiptingu framlagsins á milli sjóðanna.
Við úthlutun jöfnunarframlags ríkisins til lífeyrissjóða á árinu 2025 verður miðað við nýtt úthlutunarfyrirkomulag þar sem framlagið mun eingöngu renna til þeirra lífeyrissjóða sem bera umtalsvert hærri örorkubyrði en meðaltal lífeyrissjóða almennt, sbr. ákvæði til bráðabirgða III í lögum um tryggingagjald. Við matið er örorkubyrði skilgreind sem hlutfall örorkuskuldbindinga af framtíðarskuldbindingum og er aðeins tekið tillit til skuldbindinga umfram meðaltal miðað við næstliðið ár. Framlag hvers sjóðs ákvarðast í samræmi við þessa hlutfallslegu byrði og er því úthlutun ársins 2025 afmörkuð við þá sjóði sem eru a.m.k. tveimur prósentustigum yfir meðaltali. Um þetta vísast til fylgiskjals III.
4. Hvað skýrir það að sjóðir með litla hlutfallslega örorkubyrði hafa hlotið framlag til jöfnunar örorkubyrði frá ríkissjóði?
Fram til ársins 2024 var framlagi ríkissjóðs til jöfnunar á örorkubyrði lífeyrissjóða skipt milli allra lífeyrissjóða samkvæmt reglugerð um úthlutun og greiðslu fjárframlags til jöfnunar á örorkubyrði, sbr. lög um tryggingagjald, óháð því hvort sjóðir hefðu háa eða lága örorkubyrði. Framlaginu var skipt á grundvelli útreikninga þannig að hver sjóður fékk hlutdeild í heildarframlaginu í samræmi við meðalhlutfall tveggja þátta. Annars vegar var um að ræða hlutdeild lífeyrissjóðs í greiddum örorkulífeyri allra sjóða á næstliðnu ári og hins vegar hlutdeild sjóðs í skuldbindingum til greiðslu örorkulífeyris umfram 10% af heildarskuldbindingum lífeyrissjóða. Þar sem reiknireglan tók til allra sjóða án þess að sett væri lágmarksviðmið um örorkubyrði hlutu einnig sjóðir með litla hlutfallslega örorku hlutdeild í framlaginu. Með breytingu á lögum um tryggingagjald, sbr. ákvæði til bráðabirgða III, var ákveðið að breyta þessu fyrirkomulagi. Samkvæmt nýrri framkvæmd mun framlagið á árinu 2025 því eingöngu renna til þeirra lífeyrissjóða þar sem hlutfall örorkulífeyrisskuldbindinga af framtíðarskuldbindingum er hærra en meðaltal allra sjóða, sbr. svar við 3. tölul. fyrirspurnarinnar.
5. Hvers vegna hljóta lífeyrissjóðir með launagreiðendaábyrgð, svo sem sjóðir starfsmanna ríkis og sveitarfélaga, framlag frá ríkissjóði til jöfnunar örorkubyrði?
Framlagið var upphaflega ákveðið í tengslum við samkomulag ríkisins, ASÍ og SA árið 2005 um að jafna misþunga örorkubyrði milli lífeyrissjóða. Markmiðið var að tryggja sambærilega réttindaávinnslu sjóðfélaga óháð starfsgrein og örorkutíðni. Í framhaldinu var ákveðið að framlagið næði til allra lífeyrissjóða, ekki aðeins sjóða á samningssviði ASÍ og SA, þar sem mismunandi örorkutíðni og áhættudreifing taldist almennt réttlæta heildarjöfnun innan kerfisins.
Þrátt fyrir að lífeyrissjóðir hafi notið launagreiðendaábyrgðar eða njóta hennar enn að hluta, svo sem sjóðir starfsmanna ríkis og sveitarfélaga, bera þeir raunverulega örorkubyrði í tryggingafræðilegum skilningi og falla því undir sömu reglur um úthlutun jöfnunarframlags og aðrir lífeyrissjóðir. Framlaginu er úthlutað samkvæmt hlutlægum tryggingafræðilegum viðmiðum sem taka til allra sjóða óháð því hvort þeir starfi á almennum vinnumarkaði eða fyrir opinbera aðila. Greiðslur vegna örorku eru hluti af skuldbindingum þessara sjóða og hafa bein áhrif á fjárhagslega stöðu þeirra, ávöxtun og réttindaávinnslu sjóðfélaga. Þótt launagreiðandi beri ábyrgð á að mæta skuldbindingum ef tryggingafræðileg staða sjóðsins verður neikvæð eru það engu að síður sjóðirnir sjálfir sem annast greiðslu örorkulífeyris og halda utan um skuldbindingar á sama hátt og aðrir lífeyrissjóðir.
Að undanskilja sjóði með launagreiðendaábyrgð frá jöfnunarframlaginu hefði raskað jafnræði milli sjóðfélaga og grafið undan meginmarkmiði framlagsins, sem er að jafna mismunandi örorkubyrði milli sjóða óháð ábyrgðarskipan eða rekstrarformi. Slíkt fyrirkomulag tryggir samræmi, gagnsæi og jafna meðferð allra sjóðfélaga innan lífeyriskerfisins.
6. Hvernig er hlutdeild sjóða með launagreiðendaábyrgð reiknuð með vísan til núgildandi reglugerðar nr. 1540/2024 og eldri reglugerða um úthlutun og greiðslu fjárframlags til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða?
Vísað er til svars við 4. og 5. tölul. fyrirspurnarinnar.
7. Hefur farið fram heildstætt mat á því hvort framlag ríkisins til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða hafi í raun jafnað réttindi sjóðfélaga milli sjóða sem starfa við mismikla örorkubyrði?
Ekki hefur farið fram sérstakt heildstætt mat sem nær til allra þátta þess hvort framlag ríkissjóðs til jöfnunar á örorkubyrði lífeyrissjóða hafi í reynd jafnað réttindi sjóðfélaga milli sjóða. Aftur á móti hafa farið fram greiningar á tryggingafræðilegum forsendum og áhrifum framlagsins sem benda til þess að framlagið hafi dregið úr en ekki afnumið þann mismun sem var tilefni fyrir upptöku þess árið 2007.
Í skýrslu Talnakönnunar hf. fyrir fjármála- og efnahagsráðuneyti í febrúar árið 2024 kemur fram að framlagið hafi haft raunveruleg áhrif til að jafna stöðu þeirra sjóða sem bera þyngstu örorkubyrðina en munur á réttindum og tryggingafræðilegri stöðu sjóðanna sé þó áfram verulegur. Þar er tekið fram að örorkuþungir sjóðir, svo sem Gildi, Festa og Stapi, hafi notið um tveggja þriðju hluta framlagsins en að réttindi sjóðfélaga þeirra séu engu að síður lægri að jafnaði en hjá sjóðum með lága örorkutíðni.
Í minnisblaði fjármála- og efnahagsráðuneytis til fjárlaganefndar 8. október 2024, sem lagt var fram á 155. löggjafarþingi (dbnr. 516, 1. mál), er þetta áréttað þar sem fram kemur að með núverandi fyrirkomulagi hafi ekki tekist að jafna byrðina að fullu og að framlagið hafi í raun ekki þjónað því markmiði sem því var ætlað í upphafi. Með hliðsjón af því hafi verið ákveðið að taka fyrirkomulagið til endurskoðunar og meta framtíðarhlutverk ríkisins í jöfnun á örorkubyrði lífeyrissjóða.
Fylgiskjal I.
Skipting framlags ríkisins til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða í millj. kr.
www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s0394-f_I.pdf
Fylgiskjal II.
Skipting framlags ríkisins til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða í prósentustigum.
www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s0394-f_II.pdf
Fylgiskjal III.
Úthlutun fjárframlags – örorkubyrði.
www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s0394-f_III.pdf