Ferill 242. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 414 — 242. mál.
Svar
utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um upplýsingafulltrúa.
1. Eru upplýsingafulltrúar eða samskiptastjórar starfandi í ráðuneytinu? Ef svo er, hversu margir eru þeir?
Í ráðuneytinu starfar einn fjölmiðlafulltrúi.
2. Er upplýsinga- eða samskiptadeild starfrækt í ráðuneytinu? Ef svo er, er óskað eftir upplýsingum um fjölda starfsmanna hennar undanfarin tíu ár, sundurliðað eftir árum.
Í ráðuneytinu er starfrækt upplýsingadeild þar sem fjölmiðlafulltrúinn starfar. Í eftirfarandi töflu má sjá fjölda starfsfólks undanfarin tíu ár, sundurliðað eftir árum.
| Fjöldi starfsfólks í upplýsingadeild | |
| Ár | Fjöldi |
| 2025 | 3 |
| 2024 | 3 |
| 2023 | 3,5 |
| 2022 | 4,5 |
| 2021 | 4,5 |
| 2020 | 4,5 |
| 2019 | 5 |
| 2018 | 6* |
| 2017 | 2 |
| 2016 | 2 |
| *Deildinni breytt í upplýsinga- og greiningardeild | |