Ferill 209. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Prentað upp.
Þingskjal 431 — 209. mál.
Leiðrétt tafla.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Kristjáni Þórði Snæbjarnarsyni um aðild ríkisfyrirtækja að Viðskiptaráði og Samtökum atvinnulífsins.
Ráðuneytið óskaði eftir upplýsingum frá fyrirtækjum sem ríkið á ráðandi hlut í og svarið byggist á þeim upplýsingum.
1. Hvaða fyrirtæki sem ríkið er með ráðandi eignarhlut í hafa átt aðild að Viðskiptaráði Íslands á árunum 2015–2025? Svar óskast sundurliðað eftir árum og heiti fyrirtækis.
2. Hvað hafa fyrirtækin greitt í árgjöld og félagsgjöld til Viðskiptaráðs Íslands og fyrir aðild að Samtökum atvinnulífsins og aðildarsamtökum þeirra á tímabilinu 2015–2025, sundurliðað eftir árum?
3. Hver framangreindra fyrirtækja eiga aðild að Samtökum atvinnulífsins og aðildarsamtökum þeirra á árunum 2015–2025? Svar óskast sundurliðað eftir árum og heiti fyrirtækis.
Í eftirfarandi töflu má sjá ríkisfyrirtæki sem eiga aðild að Viðskiptaráði Íslands (VRÍ) og/eða Samtökum atvinnulífsins (SA) og aðildarsamtökum þeirra, Samtökum verslunar og þjónustu (SVÞ), Samtökum iðnaðarins (SI), Samorku, Samtökum ferðaþjónustunnar (SAF) og Samtökum fjármálafyrirtækja (SFF):
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
4. Eru einhver framangreindra fyrirtækja með bindandi samninga um aðild að Viðskiptaráði Íslands eða eiga aðild að Samtökum atvinnulífsins og aðildarsamtökum þeirra næstu ár? Ef svo er, hvaða fyrirtæki eru það, hversu lengi eru þau skuldbundin aðildinni og hvað kostar hún?
Í eftirfarandi töflu eru upplýsingar sem sýna bindandi aðild. Um kostnað vegna aðildar vísast til töflunnar á undan.
| Fyrirtæki | Samtök | Skuldbinding |
| Landsvirkjun | Viðskiptaráð Íslands | Uppsögn skrifleg, miðast við áramót, þarf að berast fyrir 1. október |
| Landsvirkjun | Samtök atvinnulífsins (í gegnum Samorku) | 12 mánaða uppsagnarfrestur |
| Orkubú Vestfjarða | Samtök atvinnulífsins (í gegnum Samorku) | 12 mánaða uppsagnarfrestur |
| Rarik | Samtök atvinnulífsins og Samorka | Engin skuldbinding en taka þarf tillit til kjarasamningsumboðs |
| Landsnet | Samorka | 12 mánaða uppsagnarfrestur |
| Landsbankinn | Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) | Uppsögn skrifleg, fyrir júnílok, gildir frá næstu áramótum |
| Landsbankinn | Samtök atvinnulífsins (í gegnum SFF) | Tengt við SFF |
| Landsbankinn | Viðskiptaráð Íslands | Skrifleg uppsögn, miðast við áramót, þarf að berast fyrir 1. október |
| Harpa | Samtök atvinnulífsins (SA) | 6 mánaða uppsagnarfrestur |
| Harpa | Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) | 6 mánaða uppsagnarfrestur |
| Neyðarlínan | SVÞ (Samtök verslunar og þjónustu) | 6 mánaða uppsagnarfrestur |
| Isavia | Samtök atvinnulífsins (SA) | 6 mánaða uppsagnarfrestur |
| Isavia | Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) | 6 mánaða uppsagnarfrestur |