Ferill 117. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 446 — 117. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um erlenda fanga.
1. Hvernig skiptast erlendir fangar í íslenskum fangelsum sl. fimm ár annars vegar eftir þjóðerni og hins vegar eftir brotum?
Aflað var upplýsinga frá Fangelsismálastofnun vegna þessarar fyrirspurnar.
Í eftirfarandi töflu má sjá fjölda erlendra fanga og eru þeir flokkaðir eftir ríkisfangi og árum. Miðað er við upphaf afplánunar í fangelsi.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Í eftirfarandi töflu má sjá hvernig erlendir fangar skiptast eftir brotum sem þeir afplána dóma fyrir. Í töflunni er miðað við upphaf afplánunar.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
2. Hver var kostnaður hins opinbera við erlenda fanga sl. fimm ár?
Aflað var upplýsinga frá Fangelsismálastofnun vegna fyrirspurnarinnar sem veitti upplýsingar um meðaltalskostnað á fanga á dag. Bak við útreikninga á meðaltalskostnaði er heildarkostnaður vegna reksturs fangelsanna fjögurra auk launakostnaðar vegna sálfræðinga og félagsráðgjafa. Heildarkostnaði er svo deilt upp með fjölda daga í afplánun og þeirri útkomu deilt með fjölda fanga.
Samkvæmt þessum upplýsingum frá Fangelsismálastofnun hefur meðaltalskostnaður á fanga á dag fyrir árið 2025 til 17. september sl. verið 56.734 kr. Árið 2024 var meðaltalskostnaður á fanga á dag 56.750 kr. og árið 2023 var kostnaðurinn 50.297 kr. Meðaltalskostnaður var 50.155 kr. fyrir árið 2022, 44.838 kr. fyrir árið 2021 og 43.996 kr. fyrir árið 2020.