Ferill 244. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 457  —  244. mál.




Svar


atvinnuvegaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um upplýsingafulltrúa.


     1.      Eru upplýsingafulltrúar eða samskiptastjórar starfandi í ráðuneytinu? Ef svo er, hversu margir eru þeir?
    Í ráðuneytinu er starfandi einn upplýsingafulltrúi auk verkefnastjóra stefnumála og samskipta.

     2.      Eru upplýsingafulltrúar eða samskiptastjórar starfandi hjá undirstofnunum ráðuneytisins? Svar óskast sundurliðað eftir stofnunum.
    Hjá Hafrannsóknastofnun er starfandi einn samskiptastjóri og hjá Ferðamálastofu sér einn starfsmaður um upplýsingamiðlun og vefmál.
    Ekki er starfandi upplýsingafulltrúi eða samskiptastjóri hjá Fiskistofu, Matvælastofnun, Neytendastofu, Samkeppniseftirlitinu eða Verðlagsstofu skiptaverðs.

     3.      Er upplýsinga- eða samskiptadeild starfrækt í ráðuneytinu eða undirstofnunum þess? Ef svo er, er óskað eftir upplýsingum um fjölda starfsmanna á deildunum undanfarin tíu ár, sundurliðað eftir árum og stofnunum.
    Hvorki eru starfræktar sérstakar upplýsinga- eða samskiptadeildir í ráðuneytinu né undirstofnunum þess.