Ferill 325. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 469 — 325. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um skráningu lögheimilis.
Frá Vilhjálmi Árnasyni.
1. Hversu margir einstaklingar hafa verið skráðir til lögheimilis í sveitarfélagi án tilgreinds heimilisfangs flokkað eftir sveitarfélögum sl. tíu ár?
2. Í hversu mörgum tilvikum hefur lögheimilisskráning verið leiðrétt á grundvelli 16. gr. laga um lögheimili og aðsetur, nr. 80/2018, undanfarin tíu ár:
a. á grundvelli frumkvæðisvinnu Þjóðskrár Íslands,
b. að beiðni þinglýsts eiganda,
c. að beiðni annarra sem hagsmuna hafa að gæta?
Svar óskast sundurliðað eftir sveitarfélögum og eftir því hvort sá sem var ranglega skráður hafði íslenskt eða erlent ríkisfang.
3. Hvaða aðilar hafa talist falla undir „aðrir hagsmunaaðilar“ í skilningi 2. mgr. 16. gr. laganna og hverjir ekki samkvæmt ákvörðunum Þjóðskrár Íslands og úrskurðum ráðuneytisins?
4. Hyggst ráðherra beita sér fyrir breytingum á gildandi lagaheimildum til að skrá lögheimili án tilgreindrar staðsetningar? Ef svo er, yrðu slíkar breytingar til að þrengja núverandi heimildir eða til að festa slíkar heimildir enn frekar í sessi?
Skriflegt svar óskast.