Ferill 326. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 470  —  326. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um dvalarleyfi útlendinga.

Frá Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur.


     1.      Hversu margir útlendingar hafa fengið dvalarleyfi hér á landi á grundvelli 61.–72. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016, sl. tíu ár, flokkað eftir þjóðerni og tegundum leyfa samkvæmt ákvæðum laganna?
     2.      Hversu margir útlendingar hafa fengið dvalarleyfi hér á landi á grundvelli IX. kafla sömu laga sl. 10 ár, flokkað eftir tegundum dvalarleyfa samkvæmt ákvæðum kaflans og þjóðerni?
     3.      Hversu margir útlendingar hafa fengið dvalarleyfi hér á landi á grundvelli X. kafla sömu laga sl. 10 ár, flokkað eftir tegundum dvalarleyfa samkvæmt ákvæðum kaflans og þjóðerni?
    Óskað er eftir því í öllum tilvikum að gerður sé greinarmunur á fyrstu leyfum og endurnýjun leyfa.


Skriflegt svar óskast.