Ferill 331. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 478 — 331. mál.
Fyrirspurn
til félags- og húsnæðismálaráðherra um samning um samræmda móttöku flóttafólks.
Frá Bryndísi Haraldsdóttur.
1. Hvað hafa sveitarfélög skuldbundið sig til að taka á móti mörgum flóttamönnum á grundvelli samnings um samræmda móttöku flóttafólks? Svar óskast sundurliðað eftir sveitarfélögum.
2. Hversu mörgum flóttamönnum hafa sveitarfélög tekið á móti á grundvelli samnings um samræmda móttöku flóttafólks? Svar óskast sundurliðað eftir sveitarfélögum.
Skriflegt svar óskast.