Ferill 241. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 485  —  241. mál.




Svar


forsætisráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um upplýsingafulltrúa.

                                  
     1.      Eru upplýsingafulltrúar eða samskiptastjórar starfandi í ráðuneytinu? Ef svo er, hversu margir eru þeir?
    Einn upplýsingafulltrúi er starfandi í forsætisráðuneytinu.

     2.      Eru upplýsingafulltrúar eða samskiptastjórar starfandi hjá undirstofnunum ráðuneytisins? Svar óskast sundurliðað eftir stofnunum.
Hagstofa Íslands.
    Hjá Hagstofunni er starfandi yfirmaður deildar samskipta og samstarfs.

Óbyggðanefnd.
    Engir upplýsingafulltrúar eða samskiptastjórar starfa hjá óbyggðanefnd.

Ríkislögmaður.
    Engir upplýsingafulltrúar eða samskiptastjórar starfa hjá ríkislögmanni.

Seðlabanki Íslands.
    Hjá Seðlabanka Íslands starfa samskiptastjóri, ritstjóri og upplýsingafulltrúi. Þessir starfsmenn sinna fleiri verkefnum en upplýsingamiðlun, samskiptamálum og fjölmiðlasamskiptum.

Umboðsmaður barna.
    Engir upplýsingafulltrúar eða samskiptastjórar starfa hjá umboðsmanni barna.

Þjóðgarðurinn á Þingvöllum.
    Engir upplýsingafulltrúar eða samskiptastjórar starfa hjá þjóðgarðinum á Þingvöllum. Hins vegar er starfandi fræðslufulltrúi sem sinnir miðlun upplýsinga og fræðslu um sögu og náttúru þjóðgarðsins til gesta ásamt móttöku gesta og skipulagningu fræðslustarfs í samstarfi við þjóðgarðsvörð.

     3.      Er upplýsinga- eða samskiptadeild starfrækt í ráðuneytinu eða undirstofnunum þess? Ef svo er, er óskað eftir upplýsingum um fjölda starfsmanna á deildunum undanfarin tíu ár, sundurliðað eftir árum og stofnunum.

    Í forsætisráðuneytinu er ekki sérstök upplýsinga- eða samskiptadeild. Upplýsingafulltrúi ráðuneytisins tilheyrir skrifstofu stjórnskipunar.
    Fram til ársins 2017 var miðlun og útgáfur hluti af upplýsingatæknideild Hagstofunnar en var sett sem sérstök deild frá árinu 2017 sem sá um útgáfur, vef og móttöku. Þar störfuðu fimm starfsmenn. Frá árinu 2024 hafa starfað fjórir starfsmenn í miðlun.

    Miðlunarteymi hefur verið starfrækt í Seðlabanka Íslands frá árinu 2020 við sameiningu Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins og störfuðu þrír í teyminu til apríl 2024. Tveir störfuðu í teyminu fram á mitt ár 2025 en starfsmenn eru nú þrír.
    Hjá öðrum stofnunum ráðuneytisins er ekki starfrækt upplýsinga- eða samskiptadeild.