Ferill 225. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 542 — 225. mál.
Svar
utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Bryndísi Haraldsdóttur um norrænt samstarf um kaup á drónum.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hverju sætir að Ísland er ekki þátttakandi í norrænu samstarfi Finnlands, Svíþjóðar, Noregs og Danmerkur, samkvæmt samkomulagi sem undirritað var 22. október 2025 í Helsinki, um sameiginleg innkaup á ómönnuðum loftförum (drónum) sem felur sömuleiðis í sér aukið samstarf landanna á sviði rannsókna, þróunar, þjálfunar og upplýsingaskipta?
Ísland hefur verið að auka þátttöku í hermálasamstarfi Norðurlandanna og þeim fjölmörgu starfshópum og verkefnum sem þar eru í gangi að teknu tilliti til þess hvernig þau henta Íslandi og borgaralegum stofnunum. Þetta samstarf snýst fyrst og fremst um ómönnuð loftför sem eru hönnuð til að nota í hernaði. Fylgst verður með framvindu þess og hvort það kunni að skapa tækifæri til að byggja upp borgaralega getu sem nýtist íslenskum stofnunum í framtíðinni. Óski Ísland síðar eftir því að taka þátt í þessu samstarfi, að hluta eða öllu leyti, stendur ekkert í vegi fyrir því.