Ferill 188. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 543 — 188. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Bryndísi Haraldsdóttur um forgang við veitingu dvalarleyfa.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Telur ráðherra að sú túlkun Útlendingastofnunar á lögum um útlendinga, nr. 80/2016, að stofnuninni beri að afgreiða umsóknir aðstandenda EES/EFTA-borgara um dvalarleyfi hraðar en sams konar umsóknir aðstandenda íslenskra ríkisborgara, sé rétt? Ef svo er, telur ráðherra rétt að breyta lögunum og afnema forgang EES/EFTA-borgara umfram íslenska ríkisborgara við veitingu dvalarleyfa?
Umsóknir um fyrstu dvalarleyfi eru að meginreglu afgreiddar í þeirri röð sem þær berast. Útlendingastofnun er þó heimilt að forgangsraða afgreiðslu umsókna um dvalarleyfi skv. 53. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016, og þá hefur stofnuninni verið heimilt að taka umsóknir um dvalarleyfi á grundvelli atvinnuþátttöku til flýtimeðferðar gegn sérstöku þjónustugjaldi. Almennt eru ekki til staðar sérstakir málsmeðferðarfrestir hvað varðar hámarksafgreiðslutíma umsókna um dvalarleyfi og hafa ákvæði stjórnsýslulaga gilt um meðferð útlendingamála hvað málsmeðferð og málshraða varðar.
Frá þessu er ein undantekning. Kveðið er á um í 3. mgr. 90. gr. laganna að umsóknir um dvalarskírteini fyrir aðstandendur EES/EFTA-borgara, sem sjálfir eru ríkisborgarar þriðju ríkja, skuli afgreiddar innan sex mánaða. Felur ákvæðið í sér sérstaka málshraðareglu, þ.e. að henni sé lokið innan sex mánaða. Ákvæði 90. gr. laganna byggir á 10. gr. tilskipunar 2004/38/EB um rétt borgara Sambandsins og aðstandenda þeirra til frjálsrar farar og dvalar á yfirráðasvæði aðildarríkjanna. Þar er kveðið á um skyldu aðildarríkis til að gefa út dvalarskírteini aðstandanda eigi síðar en sex mánuðum eftir að umsókn var lögð fram.
Samhliða verulegri fjölgun umsókna um dvalarleyfi á allra síðustu árum hefur Útlendingastofnun þurft að forgangsraða í málavinnslu til að mæta umræddum tímafresti. Hefur það leitt til þess að málsmeðferðartími þessara umsókna er almennt styttri en aðrar umsóknir um fjölskyldusameiningar.
Ráðherra telur vel koma til greina að skoða reglubreytingu í þá veru að íslenskir ríkisborgarar standi jafnfætis EES-borgurum að þessu leyti. Einnig er mikilvægt að nefna í þessu sambandi að yfirstandandi er vinna hjá ráðuneyti og Útlendingastofnun varðandi málsmeðferðartíma. Umsóknir um dvalarleyfi á leyfasviði Útlendingastofnunar hafa tvöfaldast frá árinu 2020 og hefur það haft veruleg áhrif á málsmeðferðartíma stofnunarinnar og innra starf stofnunarinnar. Samkvæmt svörum frá Útlendingastofnun er það almennt svo að málafjöldinn en ekki ákvæði laganna hafi skapað nauðsyn fyrir forgangsröðun umsókna. Þá hefur stofnunin leitað leiða til að samrýma afgreiðslutíma umsókna um fjölskyldusameiningar eins og framast er unnt til að lágmarka misræmi afgreiðslutíma eftir umsóknarflokkum. Þá er Útlendingastofnun í stafrænni vegferð fyrir málsmeðferð umsókna á leyfasviði, þar á meðal umsókna um fjölskyldusameiningar auk þess sem stofnunin er að þróa nýtt upplýsingatæknikerfi sem mun auka skilvirkni og stytta málsmeðferðartíma þegar það kemst í gagnið að fullu. Fyrirhugað er að hækka gjaldskrá Útlendingastofnunar varðandi umsóknir um dvalarleyfi og standa vonir til þess að fjárveitingar til málaflokksins aukist samhliða. Stefnt er að því að þessar breytingar komi til framkvæmda árið 2026. Vonir standa til þess að hægt verði að stytta afgreiðslutíma umsókna um dvalarleyfi og ná þar með auknu samræmi í afgreiðslutíma umsókna um fjölskyldusameiningar óháð aðstandanda.