Ferill 362. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 549 — 362. mál.
Fyrirspurn
til utanríkisráðherra um skýrslu Evrópuþingsins um málefni norðurslóða.
Frá Diljá Mist Einarsdóttur.
1. Í hverju fólst aðstoð utanríkisráðherra við gerð skýrslu utanríkismálanefndar Evrópuþingsins um málefni norðurslóða?
2. Eru fordæmi fyrir þátttöku utanríkisráðherra í gerð skýrslu á vegum Evrópusambandsins og stofnana þess?
3. Eru fordæmi fyrir því að erlend ríki eða ríkjasambönd hafi afskipti af þjóðaratkvæðagreiðslu hér á landi, líkt og Evrópusambandið hyggst hafa samkvæmt umræddri skýrslu?
4. Var ráðgert að kynna aðkomu íslenskra stjórnvalda að gerð skýrslunnar og fyrirhuguð afskipti Evrópusambandsins af þjóðaratkvæðagreiðslu hér á landi?
Skriflegt svar óskast.