Ferill 2. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 581 — 2. mál.
3. umræða.
Breytingartillaga
við frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2026.
Frá Örnu Láru Jónsdóttur.
1. 1. gr. falli brott.
2. Við 7. gr.
a. Á eftir „1. mgr. 3. gr.“ í 1. efnismgr. komi: eða b-lið 3. tölul. 1. mgr. 4. gr.
b. Í stað orðanna „skv. 1. mgr.“ í 3. efnismgr. komi: skv. 1. mgr. 3. gr. eða b-lið 3. tölul. 1. mgr. 4. gr.
3. Á eftir 53. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Þrátt fyrir 6. gr. laganna skal greiða 13.000 kr. skiptagjald í ríkissjóð samhliða greiðslu erfðafjárskatts vegna eignaskipta sem hófust fyrir 1. janúar 2026 og er lokið eftir það. Skiptagjald greiðist þó ekki ef arfur rennur að öllu leyti til erfingja sem er undanþeginn skyldu til greiðslu erfðafjárskatts.