Ferill 364. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 591 — 364. mál.
Fyrirspurn
til utanríkisráðherra um fjárstyrki til að skapa umræðuvettvang um kosti og galla aðildar Íslands að Evrópusambandinu.
Frá Diljá Mist Einarsdóttur.
1. Hvernig var umsóknar- og ákvörðunarferli háttað þegar tveimur félagasamtökum var veittur 20 millj. kr. fjárstyrkur samkvæmt heimild í fjáraukalögum III fyrir árið 2025 til að skapa umræðuvettvang um kosti og galla aðildar Íslands að Evrópusambandinu, líkt og segir í greinargerð með frumvarpi því sem síðar varð að lögunum?
2. Var stuðst við einhver skýr viðmið þegar umræddir fjárstyrkir voru ákveðnir?
3. Hvernig samrýmast framangreindir fjárstyrkir 42. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015?
Skriflegt svar óskast.