Ferill 370. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 605 — 370. mál.
Fyrirspurn
til samstarfsráðherra Norðurlanda um eingreiðslu og Norðurlandasamninga.
Frá Bryndísi Haraldsdóttur.
1. Er samþykkt Alþingis á frumvarpi um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 (eingreiðsla), 15. desember sl. í samræmi við stefnu Norðurlandanna um að verða samþættasta svæði í heimi og þá Norðurlandasamninga sem Ísland er aðili að, svo sem Norðurlandasamning um almannatryggingar, Norðurlandasamning um félagslega aðstoð og félagslega þjónustu og Norðurlandasamning um gagnkvæmni varðandi greiðslur vegna skertrar starfshæfni, í ljósi þess að áskilnaður er um að lögheimili sé skráð á Íslandi 1. nóvember 2025 til að einstaklingur fái greiðslu samkvæmt ákvæðinu?
2. Hvernig samræmist samþykkt framangreinds frumvarps því meginmarkmiði Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar að koma í veg fyrir stjórnsýsluhindranir milli landa?
Skriflegt svar óskast.