Ferill 260. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 630 — 260. mál.
Svar
menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra við fyrirspurn frá Sæunni Gísladóttur um sérstaka ívilnun námsgreina.
1. Hversu margir hafa nýtt sér heimild um sérstaka ívilnun námsgreina, sbr. 27. gr. laga um Menntasjóð námsmanna, nr. 60/2020? Svar óskast sundurliðað eftir tegund vinnuveitenda og árum frá árinu 2020.
Í 27. gr. laga um Menntasjóð námsmanna, nr. 60/2020, er kveðið á um sérstaka ívilnun námsgreina. Þar er mælt fyrir um heimild ráðherra til að ákveða sérstaka tímabundna ívilnun við endurgreiðslu námslána vegna tiltekinna námsgreina. Skilyrði fyrir beitingu heimildarinnar er að:
1. upplýsingar liggi fyrir um viðvarandi skort í starfsstétt eða að skortur sé fyrirsjáanlegur,
2. fyrir liggi skýrsla unnin af stjórnvöldum í samráði við hlutaðeigandi atvinnurekendur um mikilvægi þess að bregðast við slíkum aðstæðum,
3. ívilnun leiði til þess að þeir sem ljúki námi í námsgreininni nýti menntun sína til starfa í umræddri starfsstétt þar sem staðfestur er viðvarandi mönnunarvandi og
4. fjármagn sé aukið til Menntasjóðs námsmanna til að standa undir ívilnuninni.
Enginn hefur nýtt sér heimild til sérstakrar ívilnunar námsgreina samkvæmt lagaákvæðinu. Hvorki liggja fyrir upplýsingar um slíkan mönnunarvanda eða skýrsla unnin af stjórnvöldum sem staðfestir viðvarandi eða fyrirsjáanlegan skort á starfsfólki í starfsgrein á landsvísu. Alþingi hefur ekki veitt sérstaka fjárheimild í fjárlögum eða fjármálaáætlun til að fjármagna tímabundna ívilnun námslána vegna tiltekinna námsgreina samkvæmt ákvæðinu.
Í athugasemdum við ákvæðið í því frumvarpi sem varð að lögum um Menntasjóð námsmanna ( þskj. 373, 329. mál á 150. löggjafarþingi) kemur fram að um sé að ræða úrræði að norskri fyrirmynd en þar eigi þeir sem hófu kennaranám að hausti 2017 eða síðar möguleika á að fá afskrifaðan hluta af námslánum sínum ef þeir vinna sem kennarar í a.m.k. þrjú ár af sex fyrstu árunum eftir útskrift. Þá segir að heimild útiloki ekki beitingu annars konar stuðnings samkvæmt lögunum. Um beitingu heimildarinnar segir að upplýsingar þurfi að liggja fyrir um viðvarandi skort í ákveðinni starfsstétt eða að skortur sé fyrirsjáanlegur. Í kjölfar þess verði unnin skýrsla á vegum stjórnvalda um mönnunarvanda í umræddri starfsgrein í samráði við hlutaðeigandi atvinnurekendur eða samtök atvinnurekenda sem varpi ljósi á aðstæður og greini þörf á viðbrögðum við skorti eða fyrirsjáanlegum skorti í starfsgreininni. Þá sé skilyrði að sá sem lýkur eða hefur lokið prófgráðu í viðkomandi námsgrein nýti hana til starfa í þeirri starfsgrein. Ákveði ráðherra að nýta heimild þessa skuli meta kostnað vegna hennar og auka fjármagn til Menntasjóðsins í samræmi við það.
Með hliðsjón af framansögðu skal upplýst að ráðuneytið býr ekki yfir og safnar ekki upplýsingum um mönnun eða mönnunarvanda í starfsgreinum á vinnumarkaði almennt. Af lagaákvæðinu er óljóst hvaða stjórnvöld skuli eiga frumkvæði að slíkri upplýsingasöfnun og mótun aðgerða í því sambandi. Um frumkvæði einstakra stjórnvalda í þessu efni skal þó bent á svar við 2. tölul. fyrirspurnarinnar.
2. Hversu margir hafa nýtt sér heimild um sérstaka ívilnun vegna námsgreina á sérstökum svæðum, sbr. 28. gr. laga um Menntasjóð námsmanna, nr. 60/2020? Svar óskast sundurliðað eftir landsvæðum, tegund vinnuveitenda og árum frá árinu 2020.
Í 28. gr. laga um Menntasjóð námsmanna, nr. 60/2020, er kveðið á um sérstaka ívilnun vegna námsgreina á sérstökum svæðum. Skilyrði fyrir beitingu heimildarinnar er að:
1. fyrir liggi tillaga frá sveitarfélagi eða sveitarfélögum til stjórnvalda um þörf á menntuðu fólki í byggð sinni,
2. fyrir liggi skýrsla unnin af Byggðastofnun í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga um mikilvægi þess að bregðast við slíkum aðstæðum,
3. lánþegi hafi lokið námi og sé búsettur á skilgreindu svæði og nýti menntun sína þar að lágmarki í 50% starfshlutfalli í a.m.k. tvö ár og
4. fjármagn sé aukið til Menntasjóðs námsmanna til að standa undir ívilnuninni.
Enginn hefur nýtt sér heimild til sérstakrar ívilnunar námsgreina á sérstökum svæðum samkvæmt lagaákvæðinu. Byggðastofnun hefur nýlega, að ósk nokkurra sveitarfélaga og í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga, unnið skýrslur um mönnunarvanda hjá heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni. Greiningar og tillögur Byggðastofnunar hafa verið til umsagnar, tillögugerðar og kostnaðarmats hjá Menntasjóði námsmanna en lagaákvæðið hefur ekki að geyma neina leiðsögn um hvernig beri að standa að framkvæmd slíkra ívilnana. Fyrirhugað er að vinna tillögur um útfærslu á tillögum Byggðastofnunar í samráði við Menntasjóð námsmanna og heilbrigðisráðuneyti. Að svo búnu verður leitað eftir fjármögnun ívilnana í næstu fjármálaáætlun og við gerð fjárlaga fyrir árið 2027.
Í athugasemdum við 28. gr. í því frumvarpi sem varð að lögum um Menntasjóð námsmanna (þingskjal 373, 329. mál á 150. löggjafarþingi) kemur fram að ákvæðið sé tekið upp að norskri fyrirmynd en þar hafi þeir sem byrjuðu á kennaranámi haustið 2017 eða seinna og starfa sem kennarar í Finnmörku eða Norður-Tromsfylki átt möguleika á að fá afskrifaðan hluta af námslánum sínum ef þeir starfa sem kennarar í 50% starfi samfellt í a.m.k. tólf mánuði. Þá segir að heimild útiloki ekki beitingu annars konar stuðnings samkvæmt lögunum.
3. Hvernig metur ráðherra árangur af beitingu heimilda um sérstaka ívilnun, sbr. 27. og 28. gr. laga um Menntasjóð námsmanna, nr. 60/2020?
Í skýrslu um mat á endurskoðun laga um Menntasjóð námsmanna, nr. 60/2020, sem háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra lagði fram á 154. löggjafarþingi ( þskj. 765, 577. mál) er meðal annars fjallað um beitingu 27. og 28. gr. laga um Menntasjóð námsmanna. Þar kemur fram að ekki hafi reynt á þessi ákvæði laganna frá því að lögin tóku gildi og því sé ekki komin reynsla af framkvæmd þeirra. Hins vegar hafi starfshópur heilbrigðisráðherra skilað skýrslu í maí 2023 með tillögum til jöfnunar á aðgengi að sérfræðiþjónustu á heilbrigðissviði óháð búsetu. Helstu tillögur starfshópsins hafi snúið að því að hafin yrði vinna með það að markmiði að unnt yrði að beita ákvæðunum. Þá var nefnt sérstaklega að vert væri að hafa í huga að slíkar ívilnanir þyrfti að fjármagna sérstaklega, því að mikilvægt væri að aðrir lánþegar Menntasjóðs námsmanna væru ekki látnir bera kostnaðinn af ívilnun námslána skv. 27. gr. og 28. gr. laganna. Skýrsla starfshóps heilbrigðisráðherra nægði þó ekki ein og sér til þess að virkja ákvæði 28. gr. laganna þar sem lögbundið sé að frumkvæði að beitingu ívilnana komi frá sveitarfélagi eins og fyrr segir.
Í áhrifamati á umræddum ívilnunum í Noregi kom fram að niðurfærsla námslána ein og sér að fjárhæð 20.000 norskra króna hefði ekki tölfræðilega marktæk áhrif á það hvort menntaðir kennarar með námslán völdu að starfa í nyrstu héruðum Noregs. Jákvæð áhrif af aðgerðinni á búsetu háskólamenntaðra hafi verið tímabundin og dvínað innan sjö ára. Aðrar stuðningsaðgerðir hafi vegið þyngra eins og skattaívilnanir vegna búsetu, fjölbreytni atvinnulífs, möguleikar á starfi fyrir maka, húsnæði og stuðningur við barnafjölskyldur með aðgengi að leikskólaplássum o.fl. 1
Í ljósi þess að nú er brátt liðið fimm og hálft ár frá gildistöku laga um Menntasjóð námsmanna er þegar komin reynsla á að virkjun úrræðis 28. gr. laganna fylgir afar þungt og flókið ferli frá því að beiðni berst frá sveitarfélagi fram til þess að greining og tillögur Byggðastofnunar liggja fyrir, en þá á enn eftir að finna út úr framkvæmdinni og fjármögnuninni. Sama verður að segja um virkjun 27. gr. laganna þótt ekkert slíkt erindi liggi fyrir enn þá. Bæði lagaákvæðin skortir frekari leiðsögn um framkvæmd þeirra. Að fenginni þessari reynslu af flækjustiginu við að virkja ívilnanir samkvæmt ákvæðunum er það mat ráðherra að æskilegt sé að skoða jafnframt beitingu tímabundins skattafsláttar að fyrirmynd skattafsláttar fyrir erlenda sérfræðinga samkvæmt lögum um tekjuskatt til þess að fá sérhæft starfsfólk til starfa á landsbyggðinni.
1 Heimild: Haakon Vennemo et al., Evaluering av personrettede virkemidler i tiltakssonen i Finnmark og Nord-Troms, Vista Analyse, Rapport 2022/42 (Oslo: Vista Analyse AS, 2022).
www.regjeringen.no/contentassets/3e32e0787d0447339d9b3fb0e33f097b/vista-analyse-rapport -2022-42-evaluering-av-de-personrettede-virkemidlene-i-tiltakssonen-i-finnmark-og-nord-troms.pdf