Ferill 214. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 647  —  214. mál.




Svar


atvinnuvegaráðherra við fyrirspurn frá Sigmundi Erni Rúnarssyni um kostnað við eftirlit með hvalveiðum.


     1.      Hvenær var gerð sú breyting að leyfishafi hvalveiða og vinnslu hvalaafurða væri undanþeginn greiðslu kostnaðar við eftirlit með starfseminni og hver hefur borið þann kostnað síðan?
    Ekki hafa verið gerðar breytingar á eftirlitskostnaði við eftirlit með hvalveiðum.

     2.      Hver hefur kostnaður ríkisins við eftirlit með hvalveiðum verið frá því að breytingin tók gildi? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
    Ekki hafa verið gerðar breytingar á eftirlitskostnaði við eftirlit með hvalveiðum. Gjald er innheimt samkvæmt framlögðum reikningi eftirlitsaðila í samræmi við gjaldskrár þeirra. Í einstaka leyfisbréfum hafi þessi gjaldskylda verið áréttuð en það er hvorki grundvöllur fyrir né hefur áhrif á innheimtu kostnaðarins sem byggist á lögum og er nánar útfærð í þeim reglugerðum og gjaldskrám sem við eiga.

    Tafla 1. Kostnaður Fiskistofu.
Ár Kostnaður Fiskistofu vegna eftirlits* Innheimt hjá leyfishöfum Innheimt hjá Matvælastofnun
2014 938.000 - -
2015 1.299.600 - -
2016 886.710 - -
2017 296.384 - -
2018 1.866.400 1.550.400 -
2019 - - -
2020 - - -
2021 160.680 - -
2022 8.247.600 1.935.900 6.162.000
2023 3.485.000 615.000 2.870.000
    *Kostnaður er margfeldi eftirlitseininga og kostnaðareininga samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu.     

    Tafla 2. Innheimtur kostnaður Matvælastofnunar vegna vinnslu- og heilbrigðiseftirlits samkvæmt gjaldskrá.
Innheimt hjá leyfishöfum
2013 22.468
2014 2.245.538
2015 4.259.189
2016 44.652
2017 141.800
2018 3.607.645
2019 2.796.004
2020 0
2021 65.450
2022 7.201.510
2023 2.510.742

    Við setningu reglugerða nr. 917/2022 og 895/2023 var eftirlit með hvalveiðum aukið og sinntu eftirlitsmenn Fiskistofu eftirlitinu um borð í hvalveiðiskipum Hvals hf. Matvælastofnun barst reikningur vegna kostnaðar Fiskistofu við eftirlitið árið 2022 sem Matvælastofnun innheimti hjá Hval hf. Hvalur greiddi þjónustugjöldin með fyrirvara um að gjaldtakan væri án lagastoðar og að fyrirtækið myndi höfða mál fyrir dómstólum þar sem krafist yrði endurgreiðslu.
    Í kjölfarið stefndi Hvalur hf. málinu fyrir héraðsdóm og krafðist endurgreiðslu á eftirlitsgjöldum sem voru tilkomin vegna eftirlits starfsmanna Fiskistofu og Matvælastofnun hafði innheimt á grundvelli laga um velferð dýra. Ríkislögmaður sá um vörn málsins og eftir að hafa farið yfir stefnu og umsagnir Matvælastofnunar og sjónarmið ráðuneytisins töldu lögfræðingar ríkislögmanns ákveðna annmarka á gjaldtökunni. Eftir samráð aðila var ákveðið að Matvælastofnun endurgreiddi Hval hf. allan kostnað vegna eftirlits starfsmanna Fiskistofu fyrir hönd Matvælastofnunar ásamt dráttarvöxtum. Þessi endurgreiddi kostnaður er ekki inni í þeim fjárhæðum sem finna má í töflu 2.

    Tafla 3. Kostnaður Matvælastofnunar vegna hvalveiða.
Ár MAST Aðkeypt vinna Aðkeypt vinna dýralæknis Myndbandsvinnsla Matís Fiskistofa
2013 - 22.468 - - - -
2014 2.245.538 - - - - -
2015 4.217.076 42.113 - - - -
2016 - 44.652 - - - -
2017 - 141.800 - - - -
2018 3.607.645 - - - - -
2019 2.796.004 - - - - -
2020 - - - - - -
2021 65.450 - - - - -
2022 - - 8.518.877 - - 6.162.000
2023 2.510.742 - 1.729.705 1.679.239 840.440 2.870.000

     3.      Gilda sambærilegar undanþágur um aðrar atvinnugreinar þar sem opinbert eftirlit fer fram?
    Hvalveiðar eru ekki undanþegnar kostnaði við eftirlit, sbr. svar við 1. lið fyrirspurnarinnar.