Ferill 275. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 650  —  275. mál.




Svar


atvinnuvegaráðherra við fyrirspurn frá Karli Gauta Hjaltasyni um kostnað við starfslokasamninga.



     1.      Hversu margir starfslokasamningar hafa verið gerðir innan ráðuneytisins annars vegar og hjá undirstofnunum þess hins vegar árlega frá árinu 2018?
    Ráðuneytið hefur starfað í núverandi mynd frá 15. mars sl. þegar nýir forsetaúrskurðir um skipan Stjórnarráðsins tóku gildi, sbr. forsetaúrskurði nr. 4/2025 og nr. 5/2025. Frá febrúar 2022 til marsmánaðar á þessu ári starfaði ráðuneytið undir heiti matvælaráðuneytisins en atvinnuvegaráðuneytið tók til starfa 15. mars sl. Ráðuneytið byggir á grunni málefna sem áður heyrðu undir matvælaráðuneytið. Að auki voru málefni tengd viðskiptum, neytendamálum og ferðamálum færð til ráðuneytisins frá fyrrum menningar- og viðskiptaráðuneyti ásamt málefnum iðnaðar sem voru færð frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti. Málefni skógræktar og landgræðslu færðust frá ráðuneytinu til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis. Vegna uppskiptingar ráðuneyta var ekki unnt að afla allra gagna frá því tímabili þegar verkefnin heyrðu undir eldra ráðuneyti. Upplýsingar ráðuneytisins sem hér fylgja taka mið af gögnum frá stofnun matvælaráðuneytisins 1. febrúar árið 2022.
    Fyrirspurnin var send á eftirfarandi stofnanir sem heyra undir atvinnuvegaráðuneytið og þess óskað að upplýsingar yrðu veittar frá árinu 2018: Ferðamálastofu, Fiskistofu, Hafrannsóknastofnun, Matvælastofnun, Neytendastofu, Samkeppniseftirlitið og Verðlagsstofu skiptaverðs.
    Fjöldi starfslokasamninga sem hafa verið gerðir á umbeðnu tímabili hjá ráðuneytinu og undirstofnunum má sjá nánar í töflu hér að aftan:

Ráðuneyti/stofnun 2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024 2025 Samtals
Atvinnuvegaráðuneyti - - - - 1 1
Ferðamálastofa 1 2 3
Fiskistofa 1 1 1 3
Hafrannsóknastofnun 1 1 4 5
Matvælastofnun 1 2 3
Neytendastofa 0
Samkeppniseftirlitið 2 2
Verðlagsstofa skiptiverðs 0
Samtals

17



     2.      Hver hefur kostnaður ráðuneytisins og undirstofnana þess verið vegna þessara samninga, sundurliðað eftir árum og stofnunum?
    Eftirfarandi upplýsingar taka mið af kostnaði sem er umfram hefðbundinn uppsagnarfrest og námsleyfi sem starfsmaður á lögbundinn og/eða kjarasamningsbundinn rétt á. Enginn kostnaður féll til á árunum 2019–2020.
    Kostnaður ráðuneytisins tekur til orlofsuppgjörs og launatengdra gjalda. Kostnaður Matvælastofnunar tekur ekki til launatengdra gjalda. Kostnaður vegna starfslokasamninga Fiskistofu tekur til launa-, ferða- og endurmenntunarkostnaðar. Heildarkostnaður vegna starfslokasamninga ráðuneytisins og undirstofnana fellur til með eftirfarandi hætti á umbeðnu tímabili. Sjá töflu hér að aftan:

Ráðuneyti/stofnun 2018 2021 2022 2023 2024 2025 Samtals
Atvinnuvegaráðuneyti 4.702.100 9.118.326 13.820.246
Ferðamálastofa 2.032.418 2.032.418
Fiskistofa 9.543.604 9.543.889 3.333.306 1.261.231 23.682.030
Hafrannsóknastofnun 2.842.446 32.143.660 34.986.106
Matvælastofnun 669.752 6.371.908 5.357.590 12.399.250
Neytendastofa 0
Samkeppniseftirlitið 8.096.363 8.096.363
Samtals kostnaður 95.016.593

     3.      Hversu margir embættismenn hafa verið fluttir til í starfi hjá ráðuneytinu annars vegar og undirstofnunum þess hins vegar frá árinu 2018, sundurliðað eftir árum, stofnunum og hvort það hafi verið gert á grundvelli 36. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, eða á grundvelli annarra ákvæða laganna, svo sem 37. gr.?

    Árið 2024 voru tveir embættismenn matvælaráðuneytisins fluttir í önnur embætti innan Stjórnarráðsins á grundvelli 1. mgr. 36. gr. laga nr. 70/1996 og einn embættismaður var fluttur frá undirstofnun í starf sérfræðings í matvælaráðuneytið á grundvelli 2. mgr. 36. gr. sömu laga.
    Tveir embættismenn hafa verið fluttir til í starfi hjá Ferðamálastofu, annars vegar árið 2020 og hins vegar árið 2025, á grundvelli 36. gr. laga nr. 70/1996.