Ferill 289. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 660  —  289. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur um Kvíabryggju.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvaða reglur gilda um möguleika þeirra fanga sem fengið hafa þyngstu dómana til að afplána eftirstöðvar refsingar á Kvíabryggju? Fer það alfarið eftir hegðun eða þarf ákveðnu hlutfalli refsingar að vera lokið áður en flutningur kemur til greina?

    Fangelsi skiptast í opin fangelsi og lokuð fangelsi. Rekin eru fjögur fangelsi hér á landi, tvö lokuð og tvö opin og er Kvíabryggja annað þeirra. Allir fangar eiga rétt á því að taka út refsingu sína í opnum fangelsum og geta óskað eftir því.
    Vistun í opnu fangelsi er liður í svokallaðri stigskiptri afplánun. Fangelsismálastofnun hefur lagt áherslu á stigskipta afplánun þar sem dómþoli afplánar refsingu sína eftir atvikum og árangri endurhæfingar og færist þannig úr lokuðu fangelsi í opið fangelsi eftir einstaklingsmiðuðu mati hverju sinni. Markmiðið er að auðvelda aðlögun að samfélaginu á ný. Ef dómþoli uppfyllir skilyrði getur hann farið úr lokuðu fangelsi í opið fangelsi, þaðan á áfangaheimili og að lokum út í samfélagið með ökklaband þar til afplánun lýkur með veitingu reynslulausnar.
    Vistun í opnu fangelsi er alltaf ákveðið hlutfall af heildarafplánunartíma hvers og eins og er almennt miðað við að vistun í opnu fangelsi sé ekki lengri en fjögur ár fyrir þá sem hlotið hafa allra lengstu dóma. Sú krafa er gerð að fangi hafi ekki framið agabrot í fangelsi í a.m.k. þrjá mánuði fyrir flutning í opið fangelsi. Að öðru leyti er horft til hegðunar og metið hvort viðkomandi sé fær um að afplána dóm þar sem minni gæsla er og aukin réttindi, svo sem aukið netaðgengi. Jafnframt er horft til virkni þeirra í afplánun, þ.e. hvort viðkomandi hafi sótt vinnu eða verið í námi.