Ferill 401. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 677  —  401. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um að styðja rétt grænlensku þjóðarinnar til sjálfsákvörðunar.


Flm.: Bryndís Haraldsdóttir, Njáll Trausti Friðbertsson, Ólafur Adolfsson, Jens Garðar Helgason, Rósa Guðbjartsdóttir, Hildur Sverrisdóttir, Jón Pétur Zimsen, Diljá Mist Einarsdóttir, Vilhjálmur Árnason, Sigurður Örn Hilmarsson, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, Jón Gunnarsson, Ingveldur Anna Sigurðardóttir, Brynjar Níelsson, Þórarinn Ingi Pétursson, Grímur Grímsson, Ingibjörg Davíðsdóttir, Þorgrímur Sigmundsson, María Rut Kristinsdóttir, Halla Hrund Logadóttir, Eiríkur Björn Björgvinsson, Ingvar Þóroddsson, Sigmar Guðmundsson, Sandra Sigurðardóttir, Dagbjört Hákonardóttir, Guðmundur Ari Sigurjónsson, Ása Berglind Hjálmarsdóttir, Víðir Reynisson.


    Alþingi ályktar að styðja rétt grænlensku þjóðarinnar til sjálfsákvörðunar.
    Alþingi telur að fullveldi og sjálfsákvörðunarrétt þjóða beri ávallt að virða.
    Alþingi álítur að Grænlendingar eigi að ráða framtíð sinni sjálfir.

Greinargerð.

    Fullveldi og sjálfsákvörðunarréttur þjóða eru hornsteinar þjóðaréttar og ber ávallt að virða. Grænland er nú hluti af Konungsríkinu Danmörku. Grænlendingar hafa víðtæka sjálfstjórn og skýran rétt til að taka sjálfir ákvörðun um næstu skref þar að lútandi, þar með talið um sjálfstæði sitt, ef þeir kjósa það. Ráðamenn á Grænlandi hafa sagt skýrt og greinilega að vilji þeirra sé að vera áfram hluti af Konungsríkinu Danmörku.
    Stefna Íslands í málefnum norðurslóða er sú að taka virkan þátt í alþjóðlegu samstarfi um þau á grundvelli þeirra gilda sem höfð hafa verið að leiðarljósi í íslenskri utanríkisstefnu, m.a. um frið, lýðræði, mannréttindi og jafnrétti. Ísland leggur áherslu á friðsamlega lausn deilumála á norðurslóðum og á það að virða beri alþjóðalög, þar á meðal hafréttarsamning Sameinuðu þjóðanna og alþjóðlega mannréttindasáttmála.