Ferill 379. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 708  —  379. mál.




Svar


mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Karli Gauta Hjaltasyni um kostnað við starfslokasamninga.


     1.      Hversu margir starfslokasamningar hafa verið gerðir innan ráðuneytisins annars vegar og hjá undirstofnunum þess hins vegar árlega frá árinu 2018?
    Starfslokasamningarnir í töflunni eru þeir samningar sem gerðir hafa verið frá árinu 2018 hjá aðalskrifstofu ráðuneytisins og undirstofnunum þess og fela í sér réttindi umfram það sem kveðið er á um í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996. Alls voru tveir starfslokasamningar gerðir hjá aðalskrifstofu ráðuneytisins.
    Hjá þeim 30 stofnunum sem heyra undir málefnasvið ráðuneytisins hafa verið gerðir níu starfslokasamningar á tímabilinu.

Stofnun 2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024 2025
Mennta- og barnamálaráðuneyti 1 1
Undirstofnanir 0 2 0 1 2 2 1 1

     2.      Hver hefur kostnaður ráðuneytisins og undirstofnana þess verið vegna þessara samninga, sundurliðað eftir árum og stofnunum?
    Tilgreindur kostnaður aðalskrifstofu ráðuneytisins og undirstofnana þess vegna starfslokasamninga sem tilgreindir eru í svari við 1. tölul. fyrirspurnarinnar er sundurliðaður í töflunni að aftan í millj. kr.

Stofnun 2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024 2025
Mennta- og barnamálaráðuneyti 18,2 26,7
Barna- og fjölskyldustofa 11,5
Borgarholtsskóli 4,0
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ 12,8
Flensborgarskólinn 0,9 0,8
Menntaskólinn í Kópavogi 0,7 2,8
Menntaskólinn við Sund 3,3 2,4

     3.      Hversu margir embættismenn hafa verið fluttir til í starfi hjá ráðuneytinu annars vegar og undirstofnunum þess hins vegar frá árinu 2018, sundurliðað eftir árum, stofnunum og hvort það hafi verið gert á grundvelli 36. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, eða á grundvelli annarra ákvæða laganna, svo sem 37. gr.?
    Til að koma í veg fyrir tvítalningu vegna flutnings embættismanna í starfi hjá ráðuneytinu annars vegar og stofnunum þess hins vegar eru hér eingöngu taldir embættismenn sem flust hafa frá ráðuneytinu og forverum þess og undirstofnunum, auk þeirra embættismanna sem flust hafa innan ráðuneytisins.
    Árið 2019 var einn embættismaður fluttur til í starfi hjá ráðuneytinu. Árið 2022 var einn embættismaður fluttur á milli ráðuneyta við uppstokkun ráðuneyta í kjölfar alþingiskosninga árið 2021. Þá voru fjórir embættismenn fluttir til í starfi innan ráðuneytisins árið 2022. Einn embættismaður var fluttur á milli embætta hjá ráðuneytinu árið 2025.
    Tveir embættismenn hafa verið fluttir frá undirstofnunum í starf sérfræðings hjá ráðuneytinu á tímabilinu sem um ræðir, annars vegar frá Barnaverndarstofu árið 2018 og hins vegar frá Menntamálastofnun árið 2022.
    Allir framangreindir flutningar voru gerðir á grundvelli 36. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996.