Ferill 384. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 718 — 384. mál.
Svar
mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um skólameistara framhaldsskóla.
1. Hversu mörg embætti skólameistara framhaldsskóla voru auglýst laus til umsóknar 1. mars til 1. desember 2025?
Sex embætti skólameistara framhaldsskóla voru auglýst laus til umsóknar á fyrrgreindu tímabili, þrjú embætti í apríl og þrjú embætti í júní.
2. Hversu mörgum skólameisturum framhaldsskóla var tilkynnt að ráðherra hygðist auglýsa embætti þeirra laust til umsóknar skv. 2. mgr. 23. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, á fyrrgreindu tímabili? Svar óskast sundurliðað eftir mánuðum.
Á fyrrgreindu tímabili, nánar tiltekið í nóvember 2025, var einum skólameistara framhaldsskóla tilkynnt að ráðherra hygðist auglýsa viðkomandi embætti laust til umsóknar.
3. Skipunartími hversu margra skólameistara framhaldsskóla í embætti framlengdist sjálfkrafa samkvæmt sömu grein á fyrrgreindu tímabili? Svar óskast sundurliðað eftir mánuðum.
Samkvæmt 2. mgr. 23. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, framlengist skipunartími sjálfkrafa í embætti ef ekki er tilkynnt eigi síðar en sex mánuðum áður en skipunartíminn rennur út hvort embættið verði auglýst laust til umsóknar, nema viðkomandi embættismaður óski eftir að láta af störfum með þeim hætti sem mælt er fyrir um í 1. mgr. 37. gr. sömu laga. Í ljósi þess að í síðarnefnda ákvæðinu er kveðið á um skemmri frest af hálfu embættismanna til að biðjast lausnar og að önnur atriði geta komið til að veitt er lausn frá embætti, sbr. 25. gr. laganna, er í svarinu miðað við þegar skipunartími skólameistara rennur út og við tekur sjálfkrafa framlenging á skipunartímanum. Með hliðsjón af því var á tímabilinu 1. mars til 1. desember 2025 skipunartími fjögurra skólameistara framhaldsskóla í embætti sem framlengdist sjálfkrafa að loknum skipunartíma þeirra; skipunartími þriggja skólameistara framhaldsskóla framlengdist í ágúst 2025 og skipunartími eins skólameistara framhaldsskóla framlengdist í september 2025.
Að gefnu tilefni er rétt að komi fram að frá því að áform um nýjar svæðisskrifstofur framhaldsskóla voru kynnt á vef ráðuneytisins 17. september 2025 hefur enginn skipunartími skólameistara verið framlengdur í samræmi við 2. mgr. 23. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.