Ferill 378. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 719  —  378. mál.




Svar


mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur um fjarvist frá skóla.


     1.      Hversu mörg börn sóttu ekki skóla við upphaf skólaskyldu ár hvert undanfarin fimm ár?
     2.      Hverjar voru skilgreindar ástæður þessarar fjarvistar frá skóla?
     3.      Hve mörg börn dvöldust á Íslandi, hve mörg erlendis og hve mörg dvöldust á óþekktum dvalarstað á sama tíma?

    Samkvæmt lögum um grunnskóla, nr. 91/2008, er sveitarfélögum skylt að sjá til þess að skólaskyld börn sem eiga lögheimili í sveitarfélaginu og börnum sem hefur verið ráðstafað í fóstur til fósturforeldra, sem eiga lögheimili í sveitarfélaginu, njóti skólavistar. Sveitarfélög bera ábyrgð á skólastarfi grunnskóla og skólastjórar hvers grunnskóla bera ábyrgð á skráningu upplýsinga, þar á meðal upplýsinga um skólasókn barna.
    Meðal upplýsinga sem sveitarfélög þurfa að halda utan um er afstaða til beiðna um frávik frá skólasókn. Skólaskylda barns hefst að jafnaði við upphaf skólaárs á því almanaksári sem barnið verður sex ára en foreldrar barns geta sótt um, eða samþykkt, að barn hefji skólagöngu fyrr eða síðar og getur skólastjóri veitt slíka heimild að fenginni umsögn skólaþjónustu. Þá geta foreldrar skólaskylds barns sótt um tímabundna undanþágu frá skólasókn í einstökum námsgreinum eða að öllu leyti og er skólastjóra heimilt að veita slíka undanþágu telji hann til þess gildar ástæður. Í aðalnámskrá grunnskóla er fjallað með ítarlegri hætti um skólasókn, undanþágur frá skólasókn og undanþágur frá skyldunámi í tiltekinni námsgrein.
    Til að styðja ríki og sveitarfélög til að sinna lögbundnum hlutverkum samkvæmt lögum, þar á meðal að tryggja rétt barna til menntunar, auka gæði skólastarfs og styðja við hlutverk sveitarfélaga að tryggja börnum skólavist, hefur Miðstöð menntunar og skólaþjónustu unnið að því að byggja upp miðlægan nemendagrunn fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla. Þessum grunni er ætlað að tryggja að áreiðanlegar og samræmdar upplýsingar um skólastarf séu varðveittar með rekjanlegum hætti.
    Mennta- og barnamálaráðuneyti safnar að svo stöddu ekki með kerfisbundnum hætti upplýsingum frá sveitarfélögum um skólasókn barna og því liggja ekki fyrir upplýsingar hjá ráðuneytinu um hversu mörg börn sóttu ekki skóla við upphaf skólaskyldu undanfarin fimm ár, hver ástæða fjarvista við upphaf skólaskyldu hefur verið né hver dvalarstaður þeirra barna var á umræddum tíma. Er miðlægum nemendagrunni ætlað að veita mennta- og barnamálaráðuneyti ákveðna heildarsýn yfir stöðu mála í skólastarfi og verður hægt að nýta gögnin með markvissum hætti í þágu gæða skólastarfs, bættrar stefnumótunar, forgangsröðunar stjórnvalda og þjónustu í þágu barna og ungmenna.

     4.      Hvaða stofnanir ríkisins eru upplýstar um það þegar börn á skólaskyldualdri sækja ekki skóla?
    Samkvæmt lögum um grunnskóla skal skólastjóri leita lausna og taka ákvörðun um úrbætur verði misbrestur á skólasókn skólaskylds barns, án þess að veikindi eða aðrar gildar ástæður hamli. Jafnframt skal hann tilkynna barnaverndarþjónustu um málið.