Ferill 428. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 724 — 428. mál.
Fyrirspurn
til félags- og húsnæðismálaráðherra um atvinnuleysisbætur til erlendra ríkisborgara.
Frá Diljá Mist Einarsdóttur.
1. Hversu hárri fjárhæð námu atvinnuleysisbætur árin 2020–2025?
2. Hvernig skiptust atvinnuleysisbæturnar eftir kyni og aldri?
3. Hversu há fjárhæð rann til erlendra ríkisborgara?
4. Hversu há fjárhæð rann þar af til útlendinga með alþjóðlega vernd og umsækjenda um alþjóðlega vernd?
5. Hvernig skiptist ríkisfang tveggja fyrrgreindra hópa eftir löndum?
6. Hversu hátt hlutfall beggja fyrrgreindra hópa fékk atvinnuleysisbætur árin 2020–2025?
7. Hver hafði meðaldvalartími bótaþeganna verið þegar þeir fengu fyrst atvinnuleysisbætur?
8. Hver var meðaltími bótagreiðslnanna?
Skriflegt svar óskast.