Ferill 360. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 744 — 360. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Rósu Guðbjartsdóttur um synjun á umsóknum barna um alþjóðlega vernd.
1. Hversu mörg börn hafa fengið synjun á umsókn um alþjóðlega vernd á árinu 2025, sundurliðað eftir mánuðum, þjóðerni og aldri?
Samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun var fjöldi barna sem fékk synjun á umsókn um vernd árið 2025 eftir mánuðum og aldri við umsókn sem að aftan greinir. Tölur fyrir desembermánuð árið 2025 lágu ekki fyrir þegar upplýsingar bárust frá stofnuninni.
| Mánuðir | 0–13 ára | 14–17 ára | Samtals |
| Janúar | 4 | 1 | 5 |
| Febrúar | 3 | 2 | 5 |
| Mars | 8 | 3 | 11 |
| Apríl | 9 | 2 | 11 |
| Maí | 2 | 3 | 5 |
| Júní | 6 | 2 | 8 |
| Júlí | 9 | 1 | 10 |
| Ágúst | 2 | 0 | 2 |
| September | 3 | 0 | 3 |
| Október | 3 | 1 | 4 |
| Nóvember | 3 | 1 | 4 |
| 52 | 16 | 68 |
Fjöldi barna sem fékk synjun á umsókn um vernd árið 2025 eftir ríkisfangi var sem að aftan greinir.
| Ríkisfang | Fjöldi barna | Ríkisfang | Fjöldi barna | Ríkisfang | Fjöldi barna |
| Venesúela | 22 | Bangladess | 2 | Íran | 1 |
| Írak | 12 | Úkraína | 2 | Mexíkó | 1 |
| Nígería | 7 | Kósovó | 2 | Rússland | 1 |
| Kólumbía | 5 | Sómalía | 1 | Malasía | 1 |
| Jórdanía | 5 | Bandaríkin | 1 | Namibía | 1 |
| Palestína | 3 | Marokkó | 1 | ||
| Samtals | 68 |
2. Hversu mörgum börnum sem sótt hafa um alþjóðlega vernd hér á landi hefur verið vísað úr landi með aðkomu ríkislögreglustjóra á árinu 2025, sundurliðað eftir mánuðum, þjóðerni og aldri?
Samkvæmt upplýsingum frá heimferða- og fylgdadeild ríkislögreglustjóra fylgdi embættið 48 börnum úr landi frá 1. janúar til 15. desember 2025. Til að gæta persónuverndarsjónarmiða er þjóðerni barna ekki tilgreint ef fjöldi þeirra er færri en fimm.
| Barn fætt | Fjöldi | Barn fætt | Fjöldi | Barn fætt | Fjöldi | Barn fætt | Fjöldi |
| 2007 | 1 | 2013 | 1 | 2017 | 2 | 2022 | 6 |
| 2008 | 4 | 2014 | 2 | 2019 | 2 | 2023 | 9 |
| 2009 | 2 | 2015 | 2 | 2020 | 1 | 2024 | 6 |
| 2011 | 2 | 2016 | 1 | 2021 | 3 | 2025 | 4 |
| Þjóðerni | Fjöldi | Þjóðerni | Fjöldi | Þjóðerni | Fjöldi |
| Nígería | 11 | Palestína | >5 | Svartfjallaland | >5 |
| Úkraína | 7 | Rússland | >5 | Afganistan | >5 |
| Kósovó | 5 | Bangladess | >5 | Srí Lanka | >5 |
| Venesúela | >5 | Kólumbía | >5 | Sómalía | >5 |
| Írak | >5 | Líbía | >5 | Bandaríkin | >5 |
3. Hversu mörg börn sem sótt hafa um alþjóðlega vernd hér á landi hafa farið af landi brott í sjálfviljugri heimför í samvinnu við Útlendingastofnun á árinu 2025, sundurliðað eftir mánuðum, þjóðerni og aldri?
Samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun var fjöldi barna sem fékk aðstoð stofnunarinnar við sjálfviljuga heimför árið 2025 eftir mánuðum og aldri sem að aftan greinir.
| Mánuðir | 0–13 | 14–17 | Samtals |
| Janúar | 7 | 2 | 9 |
| Febrúar | 12 | 2 | 14 |
| Mars | 15 | 3 | 18 |
| Apríl | 5 | 1 | 6 |
| Maí | 9 | 1 | 10 |
| Júní | 5 | 4 | 9 |
| Júlí | 10 | 2 | 12 |
| Ágúst | 4 | 2 | 6 |
| September | 11 | 3 | 14 |
| Október | 9 | 1 | 10 |
| Nóvember | 0 | 0 | 0 |
| Samtals | 87 | 21 | 108 |
Fjöldi barna sem fékk aðstoð Útlendingastofnunar við sjálfviljuga heimför árið 2025 eftir ríkisfangi er sem að aftan greinir.
| Ríkisfang | Fjöldi | Ríkisfang | Fjöldi |
| Venesúela | 80 | Jórdanía | 2 |
| Nígería | 12 | El Salvador | 1 |
| Kólumbía | 6 | Panama | 1 |
| Kúba | 2 | Georgía | 1 |
| Palestína | 2 | Suður-Kórea | 1 |
| Samtals | 108 |