Ferill 336. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 745  —  336. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um afturköllun alþjóðlegrar verndar.


     1.      Hversu oft hefur alþjóðleg vernd verið afturkölluð vegna ferðar útlendings til heimalands síns undanfarin tíu ár, sbr. 1. mgr. 48. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016? Svar óskast sundurliðað eftir árum og heimalandi.
    
Samkvæmt skráningum í upplýsingakerfi Útlendingastofnunar hefur alþjóðleg vernd verið afturkölluð níu sinnum á undanförnum tíu árum vegna þess að einstaklingur hefur sjálfviljugur notfært sér vernd heimalands á ný, sbr. 1. mgr. 48. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016.     

2019 2020 2021
Afganistan 1
Alsír 1
Írak 2 2
Pakistan 2
Venesúela 1
Samtals 4 2 3
         
     2.      Hvernig er háttað eftirliti með ferðum útlendings sem veitt hefur verið alþjóðleg vernd til heimalands síns?

    Í 48. gr. laga um útlendinga er fjallað um heimildir stjórnvalda til afturköllunar alþjóðlegrar verndar. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 48. gr. er heimilt að afturkalla alþjóðlega vernd þegar einstaklingur hefur sjálfviljugur notfært sér á ný vernd heimalands síns. Útlendingastofnun hefur útbúið gátlista sem var sendur á öll lögregluembætti landsins í þessu skyni. Í gátlistanum er m.a. vísað til þess hvort viðkomandi hafi farið aftur til heimaríkis, hafi endurheimt ríkisfang sem hann hafði glatað eða öðlast nýtt ríkisfang eða hvort hann hafi framið alvarlegan glæp áður en hann sótti um alþjóðlega vernd. Landamæradeildir lögreglunnar eru með almennt eftirlit og er þá einna helst skoðuð vegabréf einstaklinga og stimplar í því. Útlendingastofnun fær einnig almennar tilkynningar frá lögreglunni ef það kemur í ljós við afskipti lögreglu að aðili sem nýtur stöðu flóttamanns hér á landi hafi farið til heimalands síns.
    Komi í ljós að einstaklingur sem hefur stöðu flóttamanns hér á landi hafi farið til heimaríkis er hann boðaður í viðtal á grundvelli hugsanlegrar afturköllunar á alþjóðlegri vernd þar sem honum er gefið færi á að útskýra tilgang ferðar til heimalands. Að loknu slíku viðtali metur Útlendingastofnun hvort skilyrði til afturköllunar séu fyrir hendi, sbr. 1. mgr. 48. gr. laga um útlendinga.
    Þeir sem njóta alþjóðlegrar verndar á Íslandi geta sótt um ferðaskírteini fyrir flóttafólk til ferða erlendis. Í skírteininu kemur fram að handhöfum þess sé óheimilt að ferðast til heimalands síns.