Ferill 280. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 775 — 280. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Karli Gauta Hjaltasyni um kostnað við starfslokasamninga.
1. Hversu margir starfslokasamningar hafa verið gerðir innan ráðuneytisins annars vegar og hjá undirstofnunum þess hins vegar árlega frá árinu 2018?
Starfslokasamningar í neðangreindri töflu eru þeir samningar sem gerðir hafa verið á tilgreindu tímabili hjá stofnunum ráðuneytisins og fela í sér réttindi umfram það sem kveðið er á um í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996. Samningarnir eru taldir á því ári sem til þeirra er stofnað og er því ekki um að ræða fjölda samninga sem greitt er af á hverjum tíma. Engir starfslokasamningar hafa verið gerðir hjá ráðuneytinu á tímabilinu en hjá þeim 13 stofnunum sem heyra undir málefnasvið ráðuneytisins hafa verið gerðir 24 starfslokasamningar á tímabilinu. Til viðmiðunar starfa yfir 16 þúsund manns í um 9.400 stöðugildum hjá heilbrigðisráðuneytinu og stofnunum þess.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
2. Hver hefur kostnaður ráðuneytisins og undirstofnana þess verið vegna þessara samninga, sundurliðað eftir árum og stofnunum?
Heildarkostnaður heilbrigðisráðuneytisins og undirstofnana er metinn um 233,5 m.kr. á árunum 2018 til 2025 og má sjá sundurliðun í neðangreindri töflu. Samningur Sjúkratrygginga nær til ársins 2027 en allur kostnaður vegna hans er gjaldfærður á árinu 2025.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
3. Hversu margir embættismenn hafa verið fluttir til í starfi hjá ráðuneytinu annars vegar og undirstofnunum þess hins vegar frá árinu 2018, sundurliðað eftir árum, stofnunum og hvort það hafi verið gert á grundvelli 36. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, eða á grundvelli annarra ákvæða laganna, svo sem 37. gr.?
Miðað var við að ráðuneyti og stofnanir svöruðu fyrir flutning embættismanna innan ráðuneytis/stofnunar og flutning frá ráðuneyti/stofnun. Með því að telja ekki upp fjölda embættismanna sem hafa verið fluttir til ráðuneytis/stofnunar er þannig komið í veg fyrir tvítalningu þegar heildarfjöldinn er skoðaður.
Í lok árs 2018 var velferðarráðuneytið lagt niður, þá fluttist hluti af skrifstofustjórum yfir til nýs heilbrigðisráðuneytis á grundvelli 36. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996.
Á árinu 2021 var einn embættismaður fluttur úr embætti í starf innan ráðuneytisins á grundvelli 36. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996. Á sama ári var einn embættismaður fluttur úr embætti í starf innan undirstofnunar á grundvelli sama ákvæðis.
Á árinu 2023 var einn embættismaður fluttur úr einu embætti í annað á grundvelli 36. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996.
Á árinu 2025 voru tveir embættismenn fluttir úr embætti í starf innan ráðuneytisins á grundvelli 36. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996.