Ferill 335. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 836 — 335. mál.
Svar
menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra við fyrirspurn frá Ásthildi Lóu Þórsdóttur um fyrningu og heimtur krafna vegna námslána eftir gjaldþrot.
Eftirfarandi svar byggist á upplýsingum frá Menntasjóði námsmanna.
1. Hversu margir einstaklingar með námslánaskuldir voru úrskurðaðir gjaldþrota frá ársbyrjun 2010 til og með 25. júní 2020, sundurliðað eftir árum?
Menntasjóður námsmanna býr ekki yfir gögnum um gjaldþrot lánþega á árunum 2010 og 2011. Hér eru því aðeins birtar upplýsingar um fjölda gjaldþrota á árunum 2012–2020.
| Ár | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 | 2017 | 2018 | 2019 | 2020 |
| Fjöldi | 46 | 84 | 122 | 135 | 88 | 91 | 82 | 68 | 28 |
2. Hverjar hafa heimtur krafna vegna námslána verið hjá einstaklingum sem voru úrskurðaðir gjaldþrota á fyrrgreindu tímabili, sundurliðaðar eftir árum? Óskað er eftir því að fram komi upphæðir og fjöldi námslána.
| Ár | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 | 2017 | 2018 | 2019 | 2020 |
| Fyrning rofin |
39 |
52 | 97 | 73 | 70 | 53 | 34 | 34 | 8 |
| Greitt í kr. | 97.885.845 | 132.541.149 | 190.478.240 | 155.050.767 | 111.586.780 | 79.437.568 | 46.569.902 | 48.157.500 | 9.562.154 |
3. Hvert er umfang fyrndra krafna vegna námslána á hendur einstaklingum sem voru úrskurðaðir gjaldþrota á fyrrgreindu tímabili, sundurliðað eftir árum? Óskað er eftir því að fram komi upphæðir og fjöldi námslána.
| Ár | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 | 2017 | 2018 | 2019 | 2020 |
| Fyrnd lán | 32 | 56 | 89 | 132 | 64 | 84 | 85 | 78 | 36 |
| Afskrifað í kr. | 110.227.264 | 222.921.735 | 310.598.305 | 435.729.168 | 259.595.503 | 302.922.173 | 330.914.178 | 327.287.436 | 130.065.292 |
4. Hversu margir einstaklingar með námslánaskuldir hafa verið úrskurðaðir gjaldþrota frá og með 26. júní 2020, sundurliðað eftir árum?
| Ár | 2020 | 2021 | 2022 | 2023 | 2024 | 2025 |
| Fjöldi lánþega | 29 | 34 | 33 | 29 | 21 | 22 |
| Fjöldi lána | 49 | 54 | 43 | 43 | 30 | 28 |
5. Hverjar hafa heimtur krafna vegna námslána verið hjá einstaklingum sem hafa verið úrskurðaðir gjaldþrota frá og með 26. júní 2020, sundurliðaðar eftir árum? Óskað er eftir því að fram komi upphæðir, hlutfall af heildarfjárhæðum og fjöldi námslána.
Menntasjóður námsmanna gerir ekki kröfu um endurgreiðslu heildareftirstöðva námslána eftir gjaldþrot heldur er gerð krafa um að greiðendur geri upp þá lögbundnu gjalddaga sem voru í vanskilum fyrir gjaldþrot og/eða hefðu fallið til á tímabili gjaldþrotaskipta. Þar sem þau lán sem enn eru í löginnheimtu eða á kröfuvakt eru enn í gjaldfelldri stöðu hefur sjóðurinn ekki reiknað fjárhæðir þeirra gjalddaga sem á þau lán hefðu fallið og því engin leið að sjá hver raunveruleg heildarvanskil eru né reikna hlutfall greiðslna af þeim.
Hér má sjá yfirlit yfir stöðu þeirra lána sem voru gjaldfelld í kjölfar úrskurðar um gjaldþrot á tímabilinu 26.06.2020 til 31.12.2025:
| Ár | 2020 | 2021 | 2022 | 2023 | 2024 | 2025 |
| Fjöldi gjaldþrota | 29 | 34 | 33 | 29 | 21 | 22 |
| Fjöldi lána | 49 | 54 | 43 | 43 | 30 | 28 |
| Uppgreidd lán | 6 | 10 | 7 | 3 | 4 | 2 |
| Í skilum | 16 | 24 | 12 | 18 | 2 | 4 |
| Kröfuvakt | 25 | 18 | 24 | 20 | 20 | 10 |
| Skiptaloka beðið | 1 | 0 | 0 | 0 | 4 | 10 |
| Greiðsluaðlögun | 0 | 1 | 0 | 0 | 0 | 0 |
| Löginnheimta | 1 | 1 | 0 | 2 | 0 | 1 |