Ferill 383. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 840 — 383. mál.
Svar
mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Karli Gauta Hjaltasyni um fjármuni til loftslagsmála.
1. Hversu miklu fé hefur verið varið árlega til loftslagsmála á vegum ráðuneytisins á árunum 2017 til og með nóvember 2025, sundurliðað eftir ráðuneyti og stofnunum?
Í eftirfarandi töflu er tilgreindur kostnaður ráðuneytisins og undirstofnana þess vegna loftslagsmála. Upphæðir eru í þús. kr.
| Stofnun | 2017 | 2018 | 2019 | 2020 | 2021 | 2022 | 2023 | 2024 | 2025 |
| Mennta- og barnamálaráðuneyti | 665 | 1.148 | 1.095 | 1.455 | 1.967 | 1.041 | 2.298 | 2.432 | 2.358 |
| Barna- og fjölskyldustofa | 120 | 150 | 170 | 185 | 326 | 362 | 466 | 392 | 420 |
| Borgarholtsskóli | 396 | 570 | 347 | ||||||
| Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra | 250 | 168 | 114 | 80 | 24 | ||||
| Fjölbrautaskóli Suðurlands | 144 | 310 | 390 | 251 | 514 | ||||
| Fjölbrautaskóli Vesturlands | 37 | 86 | |||||||
| Fjölbrautaskólinn við Ármúla | 795 | 780 | 960 | 990 | 765 | 554 | 695 | 609 | 584 |
| Fjölbrautaskólinn í Breiðholti | 88 | 472 | 5.268 | 2.785 | 3.533 | 4.937 | |||
| Fjölbrautaskólinn í Garðabæ | 175 | 140 | 175 | 275 | 225 | 306 | 270 | ||
| Flensborgarskólinn | 70 | 80 | 155 | 959 | 1.235 | 1.491 | 2.679 | 2.585 | 1.110 |
| Framhaldsskólinn á Húsavík | 196 | 348 | 278 | 509 | 612 | 469 | |||
| Framhaldsskólinn á Laugum | 160 | 160 | 160 | 160 | 160 | 160 | 160 | 160 | 160 |
| Framhaldsskólinn í A-Skaftafellssýslu | 109 | 270 | 300 | 167 | 281 | ||||
| Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ | 89 | 85 | 192 | 112 | 114 | 191 | 214 | 177 | 431 |
| Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum | 150 | 120 | 120 | 30 | 120 | ||||
| Kvennaskólinn í Reykjavík | 30 | 20 | 160 | 133 | 333 | 623 | 944 | 1.000 | 500 |
| Menntamálastofnun | 66 | 730 | 353 | 356 | 416 | 440 | 68 | ||
| Menntaskólinn að Laugarvatni | 14 | 44 | 60 | 10 | |||||
| Menntaskólinn á Egilsstöðum | 360 | 674 | 530 | 500 | 456 | ||||
| Menntaskólinn á Ísafirði | 65 | 95 | 125 | ||||||
| Menntaskólinn á Tröllaskaga | 59 | 79 | 136 | 62 | |||||
| Menntaskólinn við Hamrahlíð | 360 | 504 | 648 | 400 | 728 | 162 | 236 | ||
| Menntaskólinn við Sund | 1.494 | 192 | 137 | 252 | 266 | 250 | |||
| Miðstöð menntunar og skólaþjónustu | 82 | 263 | |||||||
| Ráðgjafar- og greiningarstöð | 620 | ||||||||
| Verkmenntaskóli Austurlands | 1 | 133 | 286 | 252 | 76 | ||||
| Samtals: | 1.929 | 2.489 | 4.246 | 6.680 | 8.217 | 12.994 | 14.879 | 14.400 | 14.551 |
2. Til hvaða verkefna hafa þessir fjármunir runnið á umræddu tímabili? Þess er óskað að verkefnum verði skipt niður eftir:
a. skattstyrkjum,
b. aðgerðum í samgöngum,
c. aðgerðum í landbúnaði,
d. öðrum beinum aðgerðum, svo sem styrkveitingum og kaupum á þjónustu einkaaðila, svo sem fyrirtækja, einstaklinga og félagasamtaka.
Enginn kostnaður hefur verið vegna a) skattstyrkja og c) aðgerða í landbúnaði. Í eftirfarandi töflu er tilgreindur kostnaður vegna (b) samgangna og (d) annarra beinna aðgerða, skipt eftir verkefnum. Upphæðir eru í þús. kr.
| Tilefni | 2017 | 2018 | 2019 | 2020 | 2021 | 2022 | 2023 | 2024 | 2025 |
| Samgöngur | 1.919 | 2.479 | 4.141 | 6.063 | 7.410 | 12.386 | 13.994 | 13.560 | 13.713 |
| Græn skref | 196 | 348 | 278 | 293 | 396 | 253 | |||
| Kolefnisjöfnun | 10 | 10 | 10 | 231 | 268 | 120 | 402 | 235 | 365 |
| Grænfáni | 95 | 190 | 190 | 210 | 190 | 210 | 220 | ||
| Samtals: | 1.929 | 2.489 | 4.246 | 6.680 | 8.217 | 12.994 | 14.879 | 14.400 | 14.551 |
3. Hvaða mælingar liggja fyrir um árangur af framangreindri ráðstöfun opinbers fjár?
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið heldur utan um árangur af loftslagsaðgerðum og svarar þessum hluta fyrirspurnarinnar fyrir hönd mennta- og barnamálaráðuneytisins.
4. Hverjir eru helstu viðtakendur umræddra fjármuna á verkefnasviði ráðuneytisins? Óskað er eftir upplýsingum um greiðslur yfir 500 þús. kr. og fyrir hvað var greitt.
Í eftirfarandi töflu eru tilgreindir helstu viðtakendur fjármuna á verkefnasviði ráðuneytisins, flokkað eftir tilefnum. Upphæðir eru í þús.kr.
| Viðtakandi | Tilefni | Upphæð |
| Ísorka ehf. | Rafhleðslustöðvar | 3.263 |
| Ísorka ehf. | Þjónusta við rafhleðslustöðvar | 1.557 |
| Landvernd | Grænfáninn | 700 |