Ferill 180. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 878 — 180. mál.
Síðari umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu Haag-samningsins um gagnkvæma innheimtu meðlags.
Frá utanríkismálanefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá Tryggingastofnun og sýslumanninum á Norðurlandi vestra.
Nefndinni bárust tvær umsagnir sem eru aðgengilegar undir málinu á vef Alþingis.
Með tillögunni er lagt til að Alþingi álykti að fela dómsmálaráðherra, fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, að fullgilda Haag-samning frá 23. nóvember 2007 um gagnkvæma innheimtu meðlags.
Umfjöllun nefndarinnar.
Í greinargerð með tillögunni kemur fram að ríkið innheimti ekki sjálfkrafa meðlag þegar meðlagsskylt foreldri býr hér á landi en meðlagsmóttakandi býr erlendis. Í gildi sé Norðurlandasamningur um innheimtu meðlaga frá 23. mars 1962 sem hefur öðlast gildi hér á landi með lögum um heimild fyrir ríkisstjórnina til að láta öðlast gildi ákvæði í samningi milli Íslands, Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar, um innheimtu meðlaga. Haag-samningurinn um gagnkvæma innheimtu meðlags miði að því að gera innheimtu meðlags skilvirkari milli aðildarríkja samningsins.
Nefndin fjallaði um málið og telur að fullgilding Haag-samningsins um gagnkvæma innheimtu meðlags (e. Hague Convention on the International Recovery of Child Support and Other Forms of Family Maintenance) af Íslands hálfu væri framfaraskref. Það væri til þess fallið að efla milliríkjainnheimtu og draga úr hindrunum sem fólk stendur frammi fyrir þegar það flytur milli landa en þarf áfram að innheimta eða greiða meðlag.
Með því bættist Ísland í hóp Norðurlanda og ríkja Evrópusambandsins sem þegar hafa fullgilt samninginn. Óbreytt fyrirkomulag felur það í sér að áfram verður til staðar norræn stjórnsýsluhindrun. Nefndin telur mikilvægt að borgarar Norðurlanda geti óhindrað ferðast, starfað, stundað nám og stofnað til atvinnurekstrar hvar sem er á Norðurlöndunum. Ísland hefur ásamt öðrum Norðurlöndum undirritað samnorrænu viljayfirlýsinguna um „Framtíðarsýn okkar 2030“ þar sem lögð er áhersla á óhindraðan hreyfanleika fólks á Norðurlöndum og afnám stjórnsýsluhindrana, í því skyni að Norðurlönd geti orðið sjálfbærasta og samþættasta svæði heims árið 2030.
Nefndin telur mikilvægt að samhliða fullgildingu undirbúi stjórnvöld nauðsynlegar lagabreytingar til að íslensk löggjöf sé í samræmi við ákvæði samningsins og tryggi að stofnanir ríkisins séu færar um að sinna þeim verkefnum sem leiði af þeim breytingum. Þá skuli stjórnvöld meta hvort ástæða sé til að nýta heimild til að gera fyrirvara við samninginn, t.d. til að takmarka aldur barna sem samningurinn nær til.
Nefndin leggur til eina breytingartillögu, þess efnis að í stað þess að Alþingi feli dómsmálaráðherra að fullgilda Haag-samninginn þá verði ráðherranum heimilað að gera það. Er um að ræða sambærilegt orðalag og þegar tillaga til þingsályktunar um fullgildingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks var samþykkt á 145. löggjafarþingi. Jafnframt er eðlilegt að stjórnvöld rýni það hvort fullgilding samningsins kalli á lagabreytingar hér á landi og er orðalaginu ætlað að skapa eðlilegt svigrúm til þess.
Að framangreindu virtu leggur nefndin til að tillagan verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
Í stað orðsins „fela“ í tillögugrein komi: heimila.
Alþingi, 2. mars 2026.
| Pawel Bartoszek, form., frsm. |
Dagbjört Hákonardóttir. | Diljá Mist Einarsdóttir. |
| Jóhann Friðrik Friðriksson. | Sigmar Guðmundsson. | Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. |
| Sigurður Helgi Pálmason. | Víðir Reynisson. | Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir. |