Ferill 389. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 885 — 389. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Isaksen um augasteinsaðgerðir og samninga við einkarekna þjónustuaðila.
1. Hvaða samningar hafa verið í gildi undanfarin fimm ár milli Sjúkratrygginga Íslands og einkarekinna læknastofa eða heilbrigðisstofnana um framkvæmd augasteinsaðgerða? Óskað er eftir því að fram komi hvaða þjónustuaðilar eiga í hlut og umfang samninga, þ.e. fjöldi aðgerða og fjárhæðir.
Undanfarin fimm ár hafa verið í gildi sérstakir samningar Sjúkratrygginga Íslands við þrjá aðila, LaserSjón, Lentis og Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk). Árin 2021–2023 var sá fjöldi aðgerða, sem framkvæmdur var á SAk og fram kemur í töflunni hér neðar, hluti af heildarfjölda aðgerða sem þar voru framkvæmdar. Sá hluti aðgerðanna (mismunurinn) var fjármagnaður með föstu framlagi til sjúkrahússins. Við innleiðingu svokallaðra DRG-samninga breytist fyrirkomulagið og árin 2024 og 2025 eru ekki sérstakir samningar um aðgerðirnar milli Sjúkratrygginga og SAk, heldur féllu allar augasteinsaðgerðir undir DRG-samning.
Árin 2021–2025 var kostnaður Sjúkratrygginga vegna sérstakra samninga samtals rúmar 500 millj. kr. og framkvæmdar voru rúmlega 3.600 aðgerðir. Sjá nánar sundurliðun í eftirfarandi töflu:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Augasteinsaðgerðir sem framkvæmdar voru á Landspítala og SAk á grundvelli DRG-samninga reiknaðist árið 2025 á 281.779 kr. Í töflunni hér neðar má sjá heildarfjölda framkvæmdra aðgerða á sjúkrahúsunum báðum á sl. árum:
2. Hvernig hefur þróun biðlista eftir augasteinsaðgerðum verið undanfarin fimm ár? Hver var meðalbiðtími á hverju ári og er vitað hvort munur er á biðtíma eftir landshlutum eða eftir því hvort aðgerðir eru framkvæmdar á opinberum eða einkareknum stofnunum?
Biðlistar hafa verið langir til fjölda ára. Þar skiptir máli öldrun þjóðar, aukin vitund en einnig of lítil afkastageta sem skýrist helst af skorti á fagfólki (bæði læknum og skurðhjúkrunarfræðingum), aðgengi að of fáum skurðstofum og þörf á miðlægum biðlista. Samkvæmt skýrslu OECD, Health at a Glance 2025, 1 er langur biðtími eftir augasteinsaðgerðum útbreiddur vandi í mörgum OECD-löndum. Flestir sem bíða eftir aðgerð bíða eftir aðgerð á Landspítala. Gögn um biðtíma og þróun hans eru úr mælaborði embættis landlæknis og birt á vef embættisins. 2 Sá fyrirvari er settur á gögnin að ekki er um einn sameiginlegan biðlista að ræða heldur er hver þjónustuveitandi með sinn biðlista og eru því dæmi um að biðskráning haldist á einum stað þrátt fyrir að einstaklingur hafi farið í aðgerð á öðrum stað, þar sem einstaklingur getur verið á biðlista hjá fleiri en einum aðila. Þá er unnið að því innan heilbrigðiskerfisins að gera samræmda, miðlæga biðlista. Einnig eru dæmi um að læknar mæli með að skrá fólk snemma á biðlistann þó að ekki sé þörf á aðgerð strax, heldur til öryggis þegar og ef til aðgerðar kæmi síðar. Á mælaborði embættis landlæknis er einungis hægt að sjá miðgildi biðtíma hjá Landspítala sem árið 2025 er um 80 vikur. Gögn um þróun biðtíma út frá fyrirliggjandi gögnum miðast við fjölda þeirra sem bíða eftir augasteinsaðgerð (fjöldi augna, ekki fjölda einstaklinga) út frá stöðunni í september ár hvert. Sjá nánar í eftirfarandi töflu:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
3. Hversu margar augasteinsaðgerðir voru framkvæmdar á hverju ári sl. fimm ár, sundurliðað eftir því hvort aðgerðir voru framkvæmdar innan opinbera heilbrigðiskerfisins eða hjá einkareknum þjónustuaðilum og eftir landshlutum, eftir því sem gögn leyfa?
Árleg þörf á fjölda augasteinsaðgerða er um 4.000–5.000 aðgerðir. Í mælaborði embættis landlæknis sem áður var vísað í kemur fram fjöldi framkvæmdra augasteinsaðgerða sundurliðað eftir tímabilum og þjónustuveitendum:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
4. Hefur ráðherra látið meta áhrif samninga við einkarekna þjónustuaðila vegna augasteinsaðgerða á biðlista, aðgengi sjúklinga og kostnað ríkisins? Ef svo er, hverjar eru niðurstöður þess mats?
Verulega hefur dregið úr árlegum fjölda aðgerða hjá Landspítala, þar sem mönnun hjúkrunarfræðinga hefur verið helsta hindrunin. Áhrifin af því eru að samhliða hefur bið eftir aðgerð lengst. Til að bregðast við þessu fól ráðherra í byrjun árs 2024 Sjúkratryggingum að leitast við að fjölga samningsbundnum aðgerðum, í þeim tilgangi að stytta biðtíma og er fyrirhugað að hægt verði að framkvæma fleiri aðgerðir mánaðarlega strax á fyrri hluta þessa árs. Hver aðgerð sem framkvæmd er utan sjúkrahúss kostar að hámarki 175.000 kr. og er hlutdeild hins opinbera að jafnaði um 90% af aðgerðarkostnaði. Aðrir starfandi augnlæknar en þeir sem starfa fyrir Lentis og geta framkvæmt umræddar aðgerðir utan sjúkrahúsa hafa ekki sýnt áhuga á samningum við Sjúkratryggingar þegar farið hefur verið í opin innkaupaferli og hafa kosið að bjóða eingöngu upp á aðgerðir þar sem sjúklingur greiðir aðgerðina að fullu.
Á Íslandi eru starfandi u.þ.b. sex skurðlæknar sem hafa færni og þekkingu til að framkvæma þessar aðgerðir. Flestir þeirra eru í hlutastarfi á Landspítala ásamt því að reka eigin starfsstofu. Að mati ráðherra er mikilvægt að hámarka fjölda augasteinsaðgerða vegna skýs á auga með samningum við einkaaðila, án þess þó að geta Landspítala til að sinna nauðsynlegri þjónustu í augnlækningum skerðist. Þá er einnig fyrirhugað að ráðast í greiningu á stöðu og framtíð augnlækningaþjónustu á landsvísu, m.a. er til skoðunar að fjölga aðgerðum með aukinni samvinnu Sjúkrahússins á Akureyri og Landspítala.
1 www.oecd.org/en/publications/2025/11/health-at-a-glance-2025_a894f72e.html
2 island.is/bidlistar-heilbrigdisthjonusta