Ferill 122. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 886  —  122. mál.




Svar


forsætisráðherra við fyrirspurn frá Tryggva Mássyni um þjónustugjöld.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvaða þjónustugjöld hafa ráðuneytið og undirstofnanir þess heimild til að innheimta, hver er fjárhæð hvers þjónustugjalds, hver er lagastoð fyrir hverju gjaldi og hvaða útreikningur eða áætlun á þeim kostnaði sem hlýst af því að veita umrædda þjónustu liggur til grundvallar hverju gjaldi? Svar óskast sundurliðað eftir stofnun.

Forsætisráðuneytið.
    Forsætisráðuneytið innheimtir engin þjónustugjöld.

Seðlabanki Íslands.
    Gjaldskrár Seðlabanka Íslands eru tvær. Annars vegar gjaldskrá Seðlabanka Íslands nr. 1673/2024 1 og hins vegar gjaldskrá Seðlabanka Íslands vegna verkefna sem tengjast fjármálaeftirliti. 2
    Gjaldskrá Seðlabanka Íslands nr. 1673/2024 er sett á grundvelli 43. gr. laga nr. 92/2019, um Seðlabanka Íslands. Samkvæmt ákvæðinu er bankanum heimilt að innheimta gjöld fyrir þjónustu sína, svo sem vegna viðskipta sem bankanum er heimilt að eiga á grundvelli laga þessara, þ.m.t. gjaldeyriskaupa og sölu, inn- og útlána og viðskipta með verðbréf, auk greiðslumiðlunar og rekstrar fjármálainnviða. Gjaldtaka Seðlabankans skal miðuð við að hún standi undir kostnaði við þá þjónustu sem veitt er og fjárhæðir í gjaldskránni taka almennt mið af útreikningi bankans á raunkostnaði fyrri ára við veitingu þjónustunnar eða áætlunum bankans á kostnaði við veitingu þjónustunnar.
    Þjónustugjöldin sem Seðlabanki Íslands innheimtir samkvæmt gjaldskrá nr. 1673/2024 eru eftirfarandi:
Grein 1. Gjaldeyriskaup/-sala.
    Gjaldeyriskaup og -sala fara fram á skráðu kaup- og sölugengi Seðlabankans með 0,5% frádragi eða 0,5% álagi sem innheimt er til að standa straum af kostnaði við viðskiptin.
Grein 2. Erlendar greiðslur.
    Gjaldtaka við erlendar greiðslur skal koma á móti þeim kostnaði sem Seðlabankinn verður fyrir við meðhöndlun erlendra greiðslna.
Grein 3. Fjárhirslur.
    Gjaldtaka við fjárhirslur miðar að því að mæta þeim kostnaði sem til fellur hjá Seðlabankanum við að greina skemmda seðla og afgreiða seðla.
Grein 4. Safnadeild.
    Gjaldtaka vegna rita og myntsetta í safnadeild er undir raunkostnaði við framleiðslu rita og myntsetta.

Grein 5. Netbanki.
    Mánaðargjald notanda í netbanka miðast við þann kostnað sem leggst á Seðlabankann við rekstur netbanka.
Grein 6. Innheimtukröfur.
    Skráningargjald á kröfu er lágmarkskostnaður sem Seðlabankinn verður fyrir við vinnslu innheimtukrafna.
Grein 7. Almennt.
    Almenn gjöld miða að því að greiða lágmarkskostnað Seðlabankans við millifærslur og svörun fyrirspurna.
Grein 8. Gjöld vegna millibankakerfis Seðlabankans.
    Markmið með gjaldtöku vegna millibankakerfis Seðlabankans er að innheimta tekjur sem eiga að jafngilda þeim kostnaði sem Seðlabankinn leggur út vegna reksturs kerfisins. Gjöldin byggja á áætlun kostnaðar næsta árs sem byggir á raunkostnaði líðandi árs ásamt tekjuafgangi/tapi næstliðins árs. Einnig er tekið tillit til áætlaðs launakostnaðar við útreikning gjaldsins. Færslugjöld byggja á kostnaði og færslufjölda líðandi árs.

    Gjaldskrá Seðlabanka Íslands vegna verkefna sem tengjast fjármálaeftirliti nr. 165/2023 er sett á grundvelli 6. mgr. 7. gr. laga nr. 99/1999, sbr. 8. mgr. 103. gr. laga nr. 108/2007, sbr. einnig 30. gr. laga nr. 11/2008 og 4. mgr. 6. gr. laga nr. 14/2020.
    Í gjaldskránni eru upplýsingar um tímagjald, annars vegar fyrir vinnu starfsmanna Seðlabanka Íslands og hins vegar aðkeypta sérfræðiþjónustu. Við ákvörðun tímagjalds er miðað við launakostnað sérfræðinga Seðlabankans og gjöld fyrir svipaða vinnu á almennum markaði.
Grein 2. Tímagjald.
    Almennt tímagjald nemur 17.000 kr. vegna vinnu starfsmanna Seðlabanka Íslands en 23.000 kr. vegna aðkeyptrar sérfræðiþjónustu. Gjaldið er innheimt samkvæmt reikningi sem gefinn er út við lok afgreiðslu máls ásamt tímaskýrslu.
Grein 3. Nauðsynlegt umframeftirlit.
    Eftirlitsskyldir aðilar greiða kostnað vegna nauðsynlegs umframeftirlitsgjalds á grundvelli tímaskýrslu.
Grein 4. Afgreiðsla umsóknar um starfsleyfi og skráningu.
    Fyrir afgreiðslu á umsóknum um starfsleyfi eru greidd fastagjöld samkvæmt 1–3. tölul. 2. mgr. 7. gr. laga nr. 99/1999, þ.e.
                      1. tölul.      Viðskiptabankar, sparisjóðir, lánafyrirtæki og vátryggingafélög greiða 3.200.000 kr.
                      2. tölul.      Verðbréfafyrirtæki, rekstrarfélög verðbréfasjóða, rekstraraðilar sérhæfðra sjóða, kauphallir, verðbréfamiðstöðvar, greiðslustofnanir og rafeyrisfyrirtæki greiða 1.280.000 kr.
                      3. tölul.      Aðrir eftirlitsskyldir aðilar greiða 330.000 kr.
                      4. tölul.      Fyrir afgreiðslu á umsóknum um skráningu eftirlitsskylds aðila er greitt fast gjald 330.000 kr., sbr. 3. mgr. 7. gr. laga nr. 99/1999.
Grein 5. Mat á hæfi aðila til að fara með virkan eignarhlut.
    Fyrir mat á hæfi aðila til að fara með virkan eignarhlut í viðskiptabanka, sparisjóði, lánafyrirtæki eða vátryggingafélagi er innheimt fast gjald, 1.800.000 kr., sbr. 4. mgr. 7. gr. laga nr. 99/1999.
Grein 6. Afgreiðsla og skráning sértækrar staðfestingar og mats.
    Fyrir afgreiðslu og skráningu á sértækum staðfestingum og mati, sbr. 1.–16. tölul. 6. gr. gjaldskrárinnar, greiða eftirlitsskyldir aðilar tímagjald skv. 2. gr. gjaldskrárinnar.
Grein 7. Lýsingar.
    Fyrir staðfestingu á lýsingu, skjala sem ætlað er að verði hluti lýsingar og viðauka við lýsingu og fyrir skráningu á endanlegum skilmálum grunnlýsinga, almennri útgefandalýsingu eða breytingum greiða aðilar tímagjald skv. 2. gr. gjaldskrárinnar. Fyrir eftirlitsverkefni í tengslum við athugun á auglýsingum lýsinga greiða aðilar sama tímagjald.
Grein 8. Endurskoðun tilboðsverðs yfirtökutilboðs.
    Tilboðsgjafi eða útgefandi greiðir tímagjald skv. 2. gr. gjaldskrárinnar vegna endurskoðunar tilboðsverðs yfirtökutilboðs skv. 8. mgr. 103. gr. laga nr. 108/2007.
Grein 9. Afgreiðsla umsóknar um leyfi til útgáfu sértryggðra skuldabréfa.
    Fyrir afgreiðslu umsóknar um leyfi til útgáfu sértryggðra skuldabréfa, sbr. 30. gr. laga nr. 11/2008, greiða aðilar tímagjald skv. 2. gr. gjaldskrárinnar.

Hagstofa Íslands.
    Hagstofa Íslands innheimtir engin þjónustugjöld.

Umboðsmaður barna.
    Umboðsmaður barna hefur ekki heimild til að innheimta þjónustugjöld.

Ríkislögmaður.
    Í lögum um ríkislögmann, nr. 51/1985, er að finna heimild ráðherra til að setja reglugerð þar sem kveðið er nánar á um framkvæmd laganna, þar á meðal um skiptingu kostnaðar af málefnum sem ríkislögmanni eru falin. Umrædd heimild hefur aldrei verið nýtt.

Óbyggðanefnd.
    Óbyggðanefnd hefur ekki heimild til að innheimta þjónustugjöld.

Þjóðgarðurinn á Þingvöllum.
    Þjóðgarðurinn á Þingvöllum innheimtir engin þjónustugjöld.

1     island.is/stjornartidindi/nr/a96ab175-696d-4db8-858a-a7bda057cdbd
2     island.is/stjornartidindi/nr/1e3d7f82-a85f-4b0a-b881-7db5b5ed0b96