Ferill 403. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 887  —  403. mál.




Svar


innviðaráðherra við fyrirspurn frá Ingveldi Önnu Sigurðardóttur um umferðaröryggisaðgerðir og fallvarnir.


    Árlega er hluta viðhalds- og þjónustufjárveitinga Vegagerðarinnar varið til þeirra verkefna stofnunarinnar sem tilheyra umferðaröryggisáætlun stjórnvalda. Stærstur hluti fjármagnsins fer til umferðaröryggisaðgerða á vegakerfinu og undirbúnings þeirra en einnig sér Vegagerðin um tæknilegan rekstur sjálfvirks hraðaeftirlits.

     1.      Hvernig er fjármunum forgangsraðað í svokallaðar minni umferðaröryggisaðgerðir?
    Þegar minni umferðaröryggisaðgerðir eru ákveðnar er horft til:
     –      Greiningarvinnu þar sem mögulegir slysstaðir eru fundnir út frá skilyrðum um fjölda slysa, slysatíðni og alvarleika þeirra.
     –      Umferðaröryggisúttekta þar sem skráðar hafa verið upplýsingar um hættulega staði á vegakerfinu, þ.e. staði þar sem hætta er á að afleiðingar verði mjög alvarlegar ef slys verður.
     –      Síðast en ekki síst er horft til ábendinga sem hafa borist frá utanaðkomandi aðilum, svo sem rannsóknarnefnd samgönguslysa og sveitarfélögum.
    Endanlegir verkefnalistar hvers árs liggja fyrir í lok mars ár hvert. Aðgerðirnar eru flestar tiltölulega ódýrar en geta þó skilað miklum árangri.

     2.      Eru aðgerðirnar flokkaðar eftir tegund eða því hve áríðandi þær eru?
    Já, aðgerðirnar eru flokkaðar eftir tegund. Verkefni sem snúa að lagfæringu umhverfis vega og/eða uppsetningu vegriða hafa verið umfangsmikil og er ástæðan sú að stór hluti alvarlegustu slysanna á þjóðvegum í dreifbýli verður þegar ökutæki lenda út af vegi. Vel útfært umhverfi vegar, án hættulegra hindrana eða mikils bratta, dregur úr líkum á alvarlegum meiðslum við útafakstur. Sums staðar verður ekki hjá því komist að setja upp vegrið, t.d. þar sem vegur liggur nálægt sjó eða vatni. Einnig þarf að lengja vegrið við fjölmargar brýr.
    Ýmis verkefni sem eru til þess fallin að auka öryggi gangandi vegfarenda, t.d. þar sem þjóðvegur liggur um þéttbýlisstaði á landsbyggðinni, eru unnin á þessum vettvangi í samráði við sveitarfélög og tengjast þau í mörgum tilvikum umferðaröryggisáætlun viðkomandi sveitarfélags. Dæmi um slík verkefni eru gerð gönguþverana og uppsetning gönguljósa.
    Unnið er að minni háttar lagfæringum á vegamótum undir þessum lið en stærri verkefni, eins og t.d. gerð hringtorgs, þarf að fjármagna á annan hátt. Tiltölulega ódýr en mjög áhrifarík umferðaröryggisaðgerð er fræsing vegriffla í vegyfirborð á milli akstursstefna og við kant vegar en slíkar rifflur geta hjálpað ökumönnum sem dotta eða hafa misst athygli við akstur. Lögð er áhersla á að fræsa slíkar rifflur alls staðar þar sem það er hægt en einungis er hægt að gera slíkt þar sem malbik er.
    Síðast en ekki síst skal nefna verkefni sem snúa að bættum merkingum. Þar má nefna uppsetningu beygjuörva við krappar beygjur og uppsetningu viðvörunarljósa við einbreiðar brýr sem dæmi.
    Mörg hundruð umferðaröryggisverkefni bíða úrlausnar og ræður það fjármagn sem til ráðstöfunar er hversu mikið er hægt að framkvæma hverju sinni. Eðli málsins samkvæmt er reynt að vinna að þeim verkefnum sem talið er að séu mest áríðandi eins fljótt og auðið er.
    Nánari upplýsingar um þau verkefni sem unnin eru má sjá í skýrslum um framkvæmd umferðaröryggisáætlunar stjórnvalda.

     3.      Hver ber ábyrgð á forgangsröðun minni umferðaröryggisaðgerða?
    Verkefnið er unnið í samvinnu deilda í miðstöð Vegagerðarinnar og svæða Vegagerðarinnar. Sérstök verklagsregla gildir um þessa vinnu. Umferðar- og umferðaröryggisdeild þróunarsviðs Vegagerðarinnar leggur fram tillögur að forgangsröðun eftir samráð við svæði Vegagerðarinnar. Tillögurnar eru sendar til framkvæmdadeildar Vegagerðarinnar og viðkomandi svæðisstjóra og í framhaldinu sendir framkvæmdadeild fjárheimildir til svæða í samræmi við samþykktar tillögur.

     4.      Hversu miklum fjármunum hefur verið ráðstafað í minni umferðaröryggisaðgerðir á síðustu fimm árum? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
    Heildarkostnaður minni aðgerða sem sérstaklega eru hugsaðar til að auka umferðaröryggi samanstendur að megninu til af verklegum framkvæmdum en einnig af kostnaði vegna myndavéla í tengslum við hraðaeftirlit, t.d. eignakaup, viðhald, rekstur og úrvinnslu.
     –      2021: Unnið var við endurbætur til að auka umferðaröryggi á 131 stað á vegakerfinu og var kostnaður við það um 635 millj. kr. Heildarkostnaður við liðinn umferðaröryggi á árinu 2021 var um 684 millj. kr.
     –      2022: Unnið var við endurbætur til að auka umferðaröryggi á um 98 stöðum á vegakerfinu og var kostnaður við það um 472 millj. kr. Heildarkostnaður við liðinn umferðaröryggi á árinu 2022 var um 525 millj. kr.
     –      2023: Unnið var við endurbætur til að auka umferðaröryggi á um 100 stöðum á vegakerfinu og var kostnaður við það um 470 millj. kr. Heildarkostnaður við liðinn umferðaröryggi á árinu 2023 var um 534 millj. kr.
     –      2024: Unnið var við endurbætur til að auka umferðaröryggi á um 80 stöðum á vegakerfinu og var kostnaður við það um 375 millj. kr. Heildarkostnaður við liðinn umferðaröryggi á árinu 2024 var um 426 millj. kr.
     –      2025: Unnið var við endurbætur til að auka umferðaröryggi á um 68 stöðum á vegakerfinu og var kostnaður við það um 477 millj. kr. Heildarkostnaður við liðinn umferðaröryggi á árinu 2025 var um 544 millj. kr.

     5.      Í hvaða umferðaröryggisaðgerðir á að ráðast samkvæmt núverandi forgangsröðun aðgerða?
    Áætlun um þau verkefni sem verða í forgangi í ár, 2026, mun liggja fyrir í lok mars. Drög að tillögum liggja fyrir og er um að ræða framkvæmdir af sama toga og undanfarin ár, sjá svar við 2. tölul. fyrirspurnarinnar.

     6.      Hversu miklum fjármunum hefur verið ráðstafað í fallvarnir við vegi landsins á síðustu tíu árum? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
    Hvað varðar liðinn minni umferðaröryggisaðgerðir, þá hafa almennt ekki verið nýttir fjármunir af þessum lið til hrunvarna (fallvarna), enda jafnan um tiltölulega dýrar framkvæmdir að ræða. Þrjár undantekningar eru á þessu, nánar til tekið 18,3 millj. kr. árið 2022 til snjóflóðavarna á Djúpvegi um Súðavíkurhlíð, 3,2 millj. kr. árið 2024 vegna hrunvarna meðfram Jökuldalsvegi og 10,3 millj. kr. árið 2025 vegna aðgerða til að hindra hrun við jarðgöng á Djúpvegi um Arnarneshamar, en þær eru fyrirhugaðar sumarið 2026.
    Að langmestu leyti hafa framkvæmdir við hrunvarnir verið fjármagnaðar með sérstökum framlögum á samgönguáætlun eða á fjárlögum. Að hluta hefur fjárveiting til nýbyggingar eða endurbyggingar vega einnig verið notuð í þessu skyni. Loks hefur lítill hluti viðhaldsfjárveitinga, til styrkinga og endurbóta á vegum annars vegar og til umferðaröryggisaðgerða hins vegar, verið notaður til að fjármagna kostnað við hrunvarnir.
    Eftirfarandi eru upplýsingar um þá fjármuni sem ráðstafað hefur verið til hrunvarna við vegi landsins síðastliðin tíu ár. Heildarkostnaður er 574,6 millj. kr.
     –      2016: 82,3 millj. kr. Gerð snjóflóðaskápa og uppsetning stálþilja við Djúpveg um Súðavíkurhlíð.
     –      2017: 32,9 millj. kr. Gerð snjóflóðaskápa og uppsetning stálþilja við Djúpveg um Súðavíkurhlíð.
     –      2018: 12,4 millj. kr. Gerð snjóflóðaskápa og uppsetning stálþilja við Djúpveg um Súðavíkurhlíð. Netkassar settir upp við Borgarfjarðarveg um Njarðvíkurskriður.
     –      2019: 121,5 millj. kr. Gerð snjóflóðaskáps á Djúpvegi um Súðavíkurhlíð. Uppsetning stálþilja og skeringar lagaðar við Hringveg í Hvalnesskriðum.
     –      2020: 100,9 millj. kr. Lokunarhlið Súðavíkurhlíð. Uppsetning stálþilja og skeringar lagaðar við Hringveg í Hvalnes- og Þvottárskriðum.
     –      2021: 130,0 millj. kr. Uppsetning stálþilja og steyptar einingar við Hringveg í Hvalnes- og Þvottárskriðum.
     –      2022: 69,3 millj. kr. Snjóflóðaskápar við Djúpveg um Súðavíkurhlíð; settar upp steyptar einingar meðfram hluta Borgarfjarðarvegar um Njarðvíkurskriður.
     –      2023: 0,0 millj. kr.
     –      2024: 15,0 millj. kr. Settar steyptar einingar við Jökuldalsveg og Borgarfjarðarveg um Njarðvíkurskriður.
     –      2025: 10,3 millj. kr. Efniskaup vegna aðgerða til að hindra hrun við jarðgöng á Djúpvegi um Arnarneshamar.
    Að lokum má geta þess að Vegagerðin er að undirbúa útboð á gerð hrunvarna á um 300 m kafla á Hringvegi við Holtsós undir Eyjafjöllum og er vonast til að útboð fari fram nú í mars og að framkvæmdum ljúki í sumar. Sú framkvæmd verður fjármögnuð af viðhaldsfjárveitingum Vegagerðarinnar 2026.