Ferill 423. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 890 — 423. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Rósu Guðbjartsdóttur um kostnað við skimun eftir krabbameini í ristli og endaþarmi.
1. Hver hefur verið árlegur heildarkostnaður við skimun eftir krabbameini í ristli og endaþarmi frá því slík skimun hófst?
Skimun fyrir krabbameini hófst á árinu 2025 með svokölluðum prófunarfasa og hefur heildarkostnaður verið um 76,3 millj. kr.
2. Hver er kostnaður við gerð skráningarforrits ristilspeglana?
Kostnaður við smíði ristilskimunarkerfis hefur verið um 89 millj. kr. Þar af er grunnkostnaður við skimunarkerfið 45 millj. kr., vinna vegna aukaverka og viðbóta 9 millj. kr. og 35 millj. kr. vegna skráningar og utanumhalds ristilspeglana. Kerfiseiningar vegna brjósta- og leghálsskimana munu svo nýta það grunnkerfi sem komið er í notkun.
3. Hver er kostnaður við undirbúning rannsókna á FIT-hægðaprófum og við prófunarfasa eitt og tvö vegna rannsókna á þeim sýnum?
Kostnaður vegna FIT- hægðaprófa er samtals 16,3 millj. kr. frá því að prófunarfasi hófst, þar af eru 9,7 millj. kr. vegna kaupa á sérhæfðum tækjabúnaði. Ekki er tilgreindur sérstakur kostnaður vegna undirbúnings rannsókna á FIT-hægðasýnum.
4. Hver er kostnaður við gerð fræðsluefnis vegna skimunar eftir krabbameini í ristli og endaþarmi?
Kostnaður við gerð fræðsluefnis hefur verið samtals 8 millj. kr. til þessa, bæði vegna hönnunar og prentunar.
5. Hver hefur verið heildarkostnaður við undirbúning skimunarverkefnisins frá árinu 2015 til dagsins í dag?
Heildarkostnaður við undirbúning ristilskimana var 49 millj. kr. frá árinu 2022 þar til skimanir hófust árið 2025. Ekki er tilgreindur sérstakur kostnaður vegna undirbúnings fyrir þann tíma. Þá er ótalið vinnuframlag starfsmanna og stjórnenda á stofnunum sem telst vera innan fjárhagsramma þeirra, m.a. vegna samráðs og funda við undirbúning verkefnisins, gerð klínískra leiðbeininga og vinnuframlag við útboðsgerð á tækjum og vöru.
6. Hver er fjárveitingin til þessa verkefnis á árinu 2026?
Heildarfjárveiting til verkefnisins á árinu 2026 er 250 millj. kr.
7. Hver er áætluð fjárveitingin til verkefnisins næstu fimm ár?
Áætluð fjárveiting er 250 millj. kr. á ári næstu fimm ár, samtals 1.250 millj. kr.