Ferill 475. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 902  —  475. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Davíðsdóttur um mannauðsmál.


     1.      Hversu mörg stöðugildi eru nú í mannauðsmálum í ráðuneytinu?
    Í dag er eitt stöðugildi í mannauðsmálum í heilbrigðisráðuneytinu.

     2.      Hvernig hefur þróunin verið í fjölda stöðugilda er sinna mannauðsmálum í ráðuneytinu á árunum 2016–2026? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
    Á tímabilinu frá 2019–2026 hefur verið eitt stöðugildi í mannauðsmálum í heilbrigðisráðuneytinu. Á árunum 2016–2019 var heilbrigðisráðuneytið hluti af velferðarráðuneytinu. Þar var eitt stöðugildi í mannauðsmálum.

     3.      Hefur ráðuneytið keypt sérfræðiráðgjöf vegna mannauðsmála árin 2016–2026? Svar óskast sundurliðað eftir árum og fyrirtækjum/rekstraraðilum.
    Já, heilbrigðisráðuneytið keypti sérfræðiráðgjöf vegna mannauðsmála á árunum 2016– 2026. Sjá nánari sundurliðun í svari við 5. tölul. fyrirspurnarinnar.

     4.      Hefur ráðuneytið gert samninga við fyrirtæki/rekstraraðila um þjónustu eða ráðgjöf á sviði mannauðsmála á árunum 2016–2026? Ef svo er, hvernig fór samningaferlið fram? Hafa samningar verið boðnir út? Hvaða fyrirtæki/rekstraraðilar sinna slíku fyrir ráðuneytið?
    Nei, heilbrigðisráðuneytið hefur ekki gert samninga við fyrirtæki/rekstraraðila um þjónustu eða ráðgjöf á sviði mannauðsmála á árunum 2016–2026.

     5.      Hver hefur kostnaður vegna fyrrgreindrar þjónustu eða ráðgjafar verið á árunum 2016– 2026? Svar óskast sundurliðað eftir árum, fyrirtækjum/rekstraraðilum.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.