Ferill 469. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 903  —  469. mál.




Svar


mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Davíðsdóttur um mannauðsmál.


     1.      Hversu mörg stöðugildi eru nú í mannauðsmálum í ráðuneytinu?
    Einn starfsmaður í heilu stöðugildi sinnir mannauðs- og gæðamálum í ráðuneytinu.

     2.      Hvernig hefur þróunin verið í fjölda stöðugilda er sinna mannauðsmálum í ráðuneytinu á árunum 2016–2026? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
    Á tímabilinu frá því í maí 2020 til mars 2023 starfaði mannauðsstjóri í ráðuneytinu í heilu stöðugildi. Frá október 2023 og til dagsins í dag hefur mannauðs- og gæðastjóri starfað í heilu stöðugildi í ráðuneytinu. Utan þess tíma voru mannauðsmál hluti af starfi annarra starfsmanna ráðuneytisins, svo sem rekstrarstjóra, auk þess sem mannauðsráðgjöf var keypt af utanaðkomandi ráðgjöfum.

     3.      Hefur ráðuneytið keypt sérfræðiráðgjöf vegna mannauðsmála árin 2016–2026? Svar óskast sundurliðað eftir árum og fyrirtækjum/rekstraraðilum.
    Sjá svar við 5. tölul. fyrirspurnarinnar.

     4.      Hefur ráðuneytið gert samninga við fyrirtæki/rekstraraðila um þjónustu eða ráðgjöf á sviði mannauðsmála á árunum 2016–2026? Ef svo er, hvernig fór samningaferlið fram? Hafa samningar verið boðnir út? Hvaða fyrirtæki/rekstraraðilar sinna slíku fyrir ráðuneytið?
    Ráðuneytið hefur gert samninga við neðangreind fyrirtæki/rekstraraðila um þjónustu eða ráðgjöf á sviði mannauðsmála á umræddu tímabili:
         Auðnast ehf.
         Goðhóll ehf.
         Líf og sál sálfræðistofa ehf.
         Vöxtur – Mannauðsráðgjöf ehf.
    Í þeim tilfellum sem gengið hefur verið til samninga um þjónustu eða ráðgjöf á sviði mannauðsmála hefur verið óskað eftir tilboðum eða gerðar verðfyrirspurnir. Í framhaldi hafa verið gerðir samningar að loknu mati á fyrirliggjandi kostnaði. Samningar hafa ekki verið boðnir út, enda upphæðir undir viðmiðunarupphæðum útboðsmála.

     5.      Hver hefur kostnaður vegna fyrrgreindrar þjónustu eða ráðgjafar verið á árunum 2016– 2026? Svar óskast sundurliðað eftir árum, fyrirtækjum/rekstraraðilum.
    Eftirfarandi tafla sýnir kostnað vegna þjónustu og ráðgjafar í mannauðsmálum hjá ráðuneytinu, einkum aðstoð við ráðningar, þ.m.t. kostnað vegna hæfnisnefnda, sálfræði- og handleiðsluviðtöl, stuðning og fræðslu, gerð starfslýsinga, jafnlaunakerfi og EKKO-fræðslu. Upphæðir eru með virðisaukaskatti og í þús. kr.

Viðskiptamaður/ár 2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024 2025 2026 Samtals
Attentus – Mannauður og ráð ehf. 2.224 61 2.285
Auðnast ehf. 2.248 2.919 2.311 1.893 2.366 1.953 152 13.841
Capacent ehf. 2.582 2.582
Goðhóll ehf. 4.688 1.130 797 320 2.817 199 9.952
Hagvangur ehf. 174 2.728 1.364 4.266
Líf og sál sálfræðistofa ehf. 338 1.047 466 219 2.069
Lögfræðistofa Reykjavíkur ehf. 2.109 2.109
Vinnvinn ehf. 632 632
Vöxtur – Mannauðsráðgjöf ehf. 5.929 6.664 773 1.013 14.379
Þekkingarmiðlun ehf. 90 35 125
Samtals 5.929 – 11.616 6.609 7.688 4.016 5.257 2.213 6.547 2.213 152 52.241