Ferill 532. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 909 — 532. mál.
Fyrirspurn
til atvinnuvegaráðherra um veiðar og eftirlit með afla erlendra fiskveiðiskipa í íslenskri lögsögu.
Frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur.
1. Er viðhaft reglulegt eftirlit með því að veiðarfæri erlendra skipa er stunda fiskveiðar í íslenskri fiskveiðilögsögu samræmist íslenskum reglum um gerð og búnað veiðarfæra? Ef svo er, hvernig fer það eftirlit fram?
2. Er afli erlendra fiskveiðiskipa veginn á vogum sem eru löggiltar af yfirvöldum á löndunarstað og af íslenskum yfirvöldum (löggildingarstofu)?
3. Eru svokallaðar flæðivogir sem vigta uppsjávarafla á þeim stöðum sem erlend uppsjávarskip landa afla sínum teknar út af íslenskum yfirvöldum á sama hátt og gert er við sambærilegan búnað í íslenskum móttökustöðvum uppsjávarfisks?
4. Er þess krafist að erlend fiskveiðiskip fari við lok veiðiferðar á ákveðinn stað þar sem yfirvöld geta komið um borð í skipin og mælt afla í lestum, líkt og íslensk fiskveiðiskip þurfa að gera þegar þau stunda veiðar í fiskveiðilögsögu annarra ríkja?
5. Er gerð krafa um að erlent fiskveiðiskip hafi um borð íslenskan eftirlitsmann á kostnað útgerðar?
6. Hafa tilkynningar skipa til íslenskra yfirvalda um aflamagn, sem hafa t.d. vegna óviðráðanlegra aðstæðna eða tilfallandi eftirlits þurft að landa í íslenskri höfn, verið í samræmi við raunverulegan afla skipanna?
7. Hvernig er eftirliti með meðafla erlendra fiskveiðiskipa, sem skipin hafa ekki veiðiheimildir fyrir, sem stunda veiðar í íslenskri fiskveiðilögsögu háttað þegar þau landa afla sínum í erlendri höfn?
8. Hverjar eru ráðstafanir í erlendum höfnum vegna hugsanlegs áðurnefnds meðafla erlendra fiskveiðiskipa sem hafa aflað farmsins í íslenskri fiskveiðilögsögu og hafa ekki veiðiheimildir fyrir honum?
9. Þegar erlent fiskveiðiskip landar meðafla í erlendri höfn, rennur þá andvirði þess meðafla til Hafrannsóknastofnunar líkt og þegar íslensk skip landa sams konar afla?
Skriflegt svar óskast.