Ferill 539. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 916 — 539. mál.
Fyrirspurn
til félags- og húsnæðismálaráðherra um Gott að eldast.
Frá Ingvari Þóroddssyni.
1. Hver hefur framvindan verið í aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk fyrir árin 2023–2027, einnig þekkt undir nafninu Gott að eldast, frá því að mælaborð verkefnisins var síðast uppfært í nóvember 2024? Hvenær verður mælaborðið uppfært næst?
2. Hvaða sveitarfélög, heilbrigðisstofnanir og aðrir aðilar eru eða hafa verið þátttakendur í verkefninu Gott að eldast frá því að Alþingi samþykkti þingsályktun um aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk fyrir árin 2023–2027?
3. Hver er afstaða ráðherra til verkefnisins Gott að eldast og hyggst ráðherra halda áfram innleiðingu aðgerðaáætlunarinnar á yfirstandandi kjörtímabili?
4. Hver hefur kostnaður verið við verkefnið Gott að eldast hingað til?
5. Eru aðgerðir og þróunarverkefni samkvæmt aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk fyrir árin 2023–2027 fjármögnuð í gildandi fjármálaáætlun?
6. Hvernig sér ráðherra fyrir sér framtíð verkefnisins Gott að eldast eftir að tímabil þingsályktunar um aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk fyrir árin 2023–2027 líður undir lok?
Skriflegt svar óskast.