Ferill 420. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
2. uppprentun.
Þingskjal 947 — 420. mál.
Viðbót.
Svar
forsætisráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um biðlaun ráðherra.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hverjar hafa verið greiðslur úr ríkissjóði vegna biðlauna til fráfarandi ráðherra vegna ráðherraskipta í núverandi ríkisstjórn? Hvaða greiðslur, ef einhverjar, er áætlað að eigi eftir að inna af hendi vegna nýlegra ráðherraskipta? Svar óskast sundurliðað eftir ráðuneytum.
Á árinu 2025 voru greiddar 9.010.402 kr. vegna biðlauna Ásthildar Lóu Þórsdóttur, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra. Um er að ræða biðlaun og launatengd gjöld.
Á yfirstandandi ári hafa verið greiddar 7.712.715 kr. vegna biðlauna Guðmundar Inga Kristinssonar, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra. Greiðslur sem áætlað er að eigi eftir að inna af hendi vegna þeirra biðlauna nema 1.063.704 kr. Um er að ræða biðlaun og launatengd gjöld.
Ráðherrar sem láta af embætti eiga rétt á biðlaunum úr ríkissjóði samkvæmt lögum um þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnað, nr. 88/1995. Ef þeir hafa gegnt ráðherraembætti skemur en eitt ár, eins og í fyrrnefndum tveimur tilvikum, fá þeir greidd biðlaun í þrjá mánuði. Heildarfjárhæð greiðslna úr ríkissjóði vegna fyrrnefndra biðlauna er 17.786.821 kr. Heildaráhrif á ríkissjóð eru þó umtalsvert minni þar sem fyrrverandi ráðherrarnir tveir hefðu annars fengið greitt þingfararkaup í þá þrjá mánuði sem þeir fengu biðlaun.