Ferill 431. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 961  —  431. mál.




Svar


félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Rósu Guðbjartsdóttur um barnalífeyrisgreiðslur.


     1.      Hver var árlegur heildarfjöldi þeirra sem fengu greiddan barnalífeyri frá Tryggingastofnun ríkisins árin 2010–2025, sundurliðað eftir upprunalandi og kyni rétthafa?
    Í fylgiskjali 1 má sjá árlegan heildarfjölda þeirra sem Tryggingastofnun greiddi barnalífeyri á árunum 2010–2025, sundurliðað eftir upprunalandi (miðað við fyrsta skráða ríkisfang sem Tryggingastofnun hefur upplýsingar um) og kyni rétthafa. Í þeim tilvikum þegar færri en fimm karlar eða konur frá tilteknu upprunalandi fengu greiddan barnalífeyri á tilteknu ári eru upplýsingar teknar saman eftir heimsálfum.

     2.      Hver var árlegur heildarfjöldi barna sem Tryggingastofnun ríkisins greiddi barnalífeyri fyrir árin 2010–2025, sundurliðað eftir upprunalandi barns?
    Í fylgiskjali 2 má sjá árlegan heildarfjölda þeirra barna sem Tryggingastofnun greiddi barnalífeyri með á árunum 2010–2025, sundurliðað eftir upprunalandi barns (miðað við fyrsta skráða ríkisfang sem Tryggingastofnun hefur upplýsingar um). Í þeim tilvikum þegar barnalífeyrir var greiddur með færri en fimm börn frá tilteknu upprunalandi á tilteknu ári eru upplýsingar teknar saman eftir heimsálfum.

     3.      Hver var árlegur heildarfjöldi samþykktra nýrra umsókna um barnalífeyrisgreiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins árin 2010–2025, sundurliðað eftir upprunalandi og kyni rétthafa?
    Í fylgiskjali 3 má sjá árlegan heildarfjölda samþykktra nýrra umsókna um barnalífeyrisgreiðslur frá Tryggingastofnun á árunum 2010–2025, sundurliðað eftir upprunalandi (miðað við fyrsta skráða ríkisfang sem Tryggingastofnun hefur upplýsingar um) og kyni rétthafa. Í þeim tilvikum þegar færri en fimm karlar eða konur fengu samþykkta nýja umsókn um barnalífeyri á tilteknu ári eru upplýsingar teknar saman eftir heimsálfum.


Fylgiskjal I.

www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s0961-f_I.pdf


Fylgiskjal II.

www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s0961-f_II.pdf


Fylgiskjal III.

www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s0961-f_III.pdf