Ferill 573. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 972  —  573. mál.




Fyrirspurn


til atvinnuvegaráðherra um nýtingu á útgefnum aflaheimildum.

Frá Sigurjóni Þórðarsyni.


     1.      Hvert var magn hlutdeildarsettra sjávardýra, sbr. lög um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006, sem ekki hefur verið veitt á síðustu fimm fiskveiðiárum miðað við útgefnar aflaheimildir, skipt eftir tegundum?
     2.      Hver var hlutfallsleg nýting aflaheimilda eftir fiskveiðiárum á sama tímabili, skipt eftir tegundum?
     3.      Í hvaða tilvikum og á hvaða fiskveiðiárum á sama tímabili hefur ónýtt hlutfall aflaheimilda numið meira en 5% af heildarúthlutun?


Skriflegt svar óskast.