Ferill 185. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 977 — 185. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Isaksen um ábyrgð á líki.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hver ber ábyrgð á líki eftir að læknir hefur staðfest andlát og gefið út dánarvottorð þar til útför eða líkbrennsla fer fram, annars vegar þegar venslamanni hins látna er til að dreifa og hins vegar þegar svo er ekki?
Þau lög sem koma til álita hér og falla undir málefnasvið dómsmálaráðherra eru lög um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu, nr. 36/1993. Einnig eru í gildi lög um dánarvottorð, krufningar o.fl., nr. 61/1998, og falla þau undir málefnasvið heilbrigðisráðherra. Í þeim lögum eru m.a. ákvæði um að lík skuli geymt á stað við hæfi og að dánarvottorð sé afhent venslamanni hins látna sem afhendir það sýslumanni.
Lög um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu hafa ekki að geyma skýr afdráttarlaus ákvæði sem lúta að ábyrgð á líki frá útgáfu dánarvottorðs og fram að útför. Í lögunum er gert ráð fyrir því að ýmsar ákvarðanir séu teknar af vandamönnum hins látna. Má þar sem dæmi nefna að ef ekki liggur fyrir ákvörðun sjálfráða manns um hvort greftra skuli lík hans eða brenna þá er það í höndum vandamanna hins látna að taka ákvörðun um það.
Það hefur skapast löng venja um að það sé í höndum nánustu aðstandenda eða vandamanna látins einstaklings að hafa samband við útfararþjónustu sem sér um að koma líkinu í líkhús en jafnframt að annast undirbúning útfarar hins látna. Um útfararþjónustu gilda ákveðnar reglur en skv. 1. mgr. 21. gr. laga um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu mega þeir einir reka útfararþjónustu sem hafa til þess leyfi sýslumanns. Samkvæmt 1. mgr. 3. gr. laga um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu má útför ekki fara fram fyrr en staðfesting sýslumanns um að andlát hafi verið tilkynnt liggi fyrir.
Ef engir vandamenn eru til staðar til þess að hafa samband við útfararþjónustu er málið flóknara og er ekki skýrt af fyrrgreindum lögum hver skuli annast undirbúning útfarar og standa straum af kostnaði sem af henni hlýst ef dánarbú er eignarlaust. Álitamál sem upp hafa risið við slíkar aðstæður hafa ekki verið mörg og hefur verið reynt að leysa í samvinnu ýmissa aðila, svo sem ráðuneyta, lögreglu, kirkjugarða, viðkomandi sveitarfélags eða sjúkrahúss.