Ferill 404. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 986 — 404. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Ingveldi Önnu Sigurðardóttur um lóðarleigusamninga.
1. Hversu margar lóðir leigir ríkið út undir sumarhús?
Alls eru 326 samningar í gildi um frístundalóðir á ríkislandi sem eru í umsýslu á vegum Framkvæmdasýslunnar – Ríkiseigna (FSRE) og Lands og skógar.
2. Hversu marga lóðarleigusamninga vegna frístundalóða hefur ríkið gert á síðustu fimm árum? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
Á síðastliðnum árum hefur eingöngu verið gengið frá endurnýjun lóðarleigusamninga sem voru að renna út. Engum nýjum frístundalóðum hefur verið úthlutað úr ríkislandi á þessu tímabili. Endurnýjun samninga sundurliðast með eftirfarandi hætti á síðastliðnum árum:
| Ár | Fjöldi |
| 2026 | 6 |
| 2025 | 7 |
| 2024 | 11 |
| 2023 | 9 |
| 2022 | 8 |
| 2021 | 19 |
| Samtals | 60 |
3. Hversu margir lóðarleigusamningar hafa verið gerðir og eru í gildi í heildina?
Alls eru 534 lóðarleigusamningar á ríkislandi í gildi hjá FSRE og Landi og skógi. Þar af eru 208 lóðir fyrir íbúðarhús og atvinnurekstur en 326 lóðir fyrir frístundahús.
Þessu til viðbótar eru stór landsvæði á Reykjanesi leigð til sveitarfélaga þar sem fjölmargar lóðir hafa verið stofnaðar á leigusvæðinu. Endurgjald til ríkisins tekur mið af fasteignamati lóða innan hvers svæðis. Fjöldi þessara lóða er alls 452.
4. Hver er kostnaðurinn við umsýslu á frístundalóðum í eigu ríkisins?
Ekki er haldið sérstaklega utan um það hver kostnaður ríkisins er við umsýslu á frístundalóðum í eigu ríkisins umfram aðra umsýslu á ríkisjörðum eða landi í ríkiseigu.
5. Stendur til að selja umræddar lóðir til lóðarleigutaka?
Í 6. gr. fjárlaga liggur fyrir eftirfarandi heimild: „Að selja sumarhúsalóðir, íbúðarlóðir og spildur í eigu ríkisins, sem leigðar hafa verið til langs tíma, til leigjenda á grundvelli óháðs verðmats enda liggi ekki sérstakir almannahagsmunir að baki eignarhaldi ríkisins.“
Verklagsreglur voru settar árið 2020 um beitingu heimildarinnar af hálfu ráðuneytisins sem birtar eru á heimasíðu FSRE. Tilgangur verklagsreglnanna var að skýra þau efnislegu sjónarmið sem ráðuneytið taldi eðlilegt að leggja til grundvallar við mat á óskum leigutaka um kaup á lóð eða spildu á grundvelli heimildarinnar. Erindi tengd heimildinni eru send FSRE sem metur hvort skilyrði til sölu séu fyrir hendi og leggur matið fyrir ráðuneytið. Eftirfarandi skilyrði þurfa að vera uppfyllt til að hægt sé að nýta heimildina:
1. Um er að ræða lóðir eða spildur sem hafa verið í leigu hjá viðkomandi aðila eða tengdum aðilum til langs tíma, í 15 ár eða lengur.
2. Um er að ræða land sem er undir 20 hekturum að stærð. Heimildin gildir ekki um jarðir.
3. Ólíklegt er að leigusamningi verði sagt upp og að landið falli aftur til ríkisins til almennrar ráðstöfunar.
4. Lóðarleiguhafi hefur byggt fasteign á leigulandinu eða nýtt spildu með öðru landi í hans eigu.
5. Lóðarleiguhafi hyggst nýta leigulandið áfram til eigin nota.
6. Engir sérstakir almannahagsmunir liggja að baki eignarhaldi ríkisins á viðkomandi landi, svo sem vegna verndar- eða menningarsjónarmiða eða annars konar nýtingar á vegum ríkisins.
7. Sala á viðkomandi landi rýrir ekki verðmæti aðliggjandi lands í eigu ríkisins eða skiptir upp samfelldu eignarhaldi ríkisins á tilteknu svæði með óhagkvæmum hætti.
8. Söluverð byggist á hlutlægu verðmati og telst að öðru leyti ásættanlegt út frá öðrum sjónarmiðum.