Ferill 464. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 987  —  464. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Árna Helgasyni um hagræðingu í ríkisrekstri.

     1.      Hversu mikil hagræðing hefur átt sér stað í ráðuneytinu nú þegar á grundvelli tillagna starfshóps forsætisráðherra til ríkisstjórnar eftir samráð við almenning sem skilað var 4. mars 2025? Í hverju felst hagræðingin, sundurliðað eftir málaflokkum og undirstofnunum?
    Tillögur hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar nýttust við forgangsröðun í fjármálaáætlun 2026–2030 þar sem markmiðið var að ná fram aukinni skilvirkni og draga úr rekstrarkostnaði án þess að skerða opinbera þjónustu. Við undirbúning fjárlaga 2026 útfærði hvert ráðuneyti nánar hagræðingaraðgerðir innan fjárveitinga sinna málaflokka, sjá töflu hér á eftir.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


















    Varðandi áhrif tillagnanna á starfsemina á árinu 2025 er vert að benda á að það ár var starfsemi ríkisaðila í samræmi við þágildandi ársáætlanir á grundvelli fjárlaga þess árs. Fjárlög 2025 gerðu ráð fyrir almennri hagræðingu upp á 2,2 milljarða kr. innan ársins og 8,2 milljarða kr. sértæka hagræðingu. Þar sem tillögurnar voru ekki samþættar inn í fjárlög 2025 liggur ekki fyrir hvaða hagræðing hafi náðst vegna tillagnanna á árinu 2025. Þrátt fyrir þetta nýttust tillögurnar til að koma ýmsum verkefnum af stað. Því fóru ráðuneyti og stofnanir strax í vinnu við að innleiða mál í samræmi við tillögur hópsins eins og gerð er grein fyrir í skýrslu starfshóps forsætis- og fjármála- og efnahagsráðuneytis skýrslu starfshóps forsætis- og fjármála- og efnahagsráðuneytis">skýrslu starfshóps forsætis- og fjármála- og efnahagsráðuneytis Hagsýni í ríkisrekstri, Hagsýnií ríkisrekstri">Hagsýni í ríkisrekstri,

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.







1     Skýrsla starfshóps forsætis- og fjármála- og efnahagsráðuneytis.
2     Vefur Stjórnarráðsins, Hagsýni í ríkisrekstri.