Ferill 584. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 989  —  584. mál.




Fyrirspurn


til utanríkisráðherra um aðkeypta þjónustu og skoðanakannanir.

Frá Ingibjörgu Davíðsdóttur.


     1.      Hefur ráðuneytið keypt utanaðkomandi ráðgjöf eða þjónustu, innlenda eða erlenda, vegna eða á sviði öryggis- og varnarmála á tímabilinu frá janúar 2020 til febrúar 2026? Ef svo er, er óskað eftir upplýsingum um hvað slík ráðgjöf eða þjónusta fól í sér og á hvaða sviðum öryggis- og varnarmála. Þá er einnig óskað eftir upplýsingum um kostnað, sundurliðað eftir árum og ráðgjafar- eða þjónustuveitendum.
     2.      Hefur ráðuneytið keypt skoðanakannanir eða spurningavagna vegna Evrópusambandsmála á tímabilinu frá janúar 2022 til febrúar 2026? Ef svo er, hversu oft og á hvaða tímabilum? Hvernig hafa spurningarnar verið orðaðar? Hafa allar niðurstöður verið birtar opinberlega? Hver hefur kostnaður ráðuneytisins vegna stakra kannana eða spurningavagna verið? Svar óskast sundurliðað eftir árum.


Skriflegt svar óskast.