Ferill 10. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Prentað upp.
Þingskjal 10 — 10. mál.
Flutningsmenn.
Tillaga til þingsályktunar
um fríverslun milli Íslands, Noregs, Grænlands, Færeyja, Bretlands, Bandaríkjanna og Kanada, samhliða samstarfi á sviði viðskipta, lista og menningar, vísinda og mennta, náttúruverndar og öryggismála.
Flm.: Njáll Trausti Friðbertsson, Árni Helgason, Diljá Mist Einarsdóttir, Sigurður Örn Hilmarsson, Ólafur Adolfsson, Jón Pétur Zimsen.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að hafa frumkvæði að viðræðum við stjórnvöld í Bandaríkjunum, Bretlandi, Kanada, Noregi, á Grænlandi og í Færeyjum um víðtækt samstarf á sviði viðskipta, lista og menningar, vísinda og mennta, náttúruverndar og öryggismála. Samstarfið verði kennt við Norður-Atlantshafið.
Meginmarkmiðið verði að mynda fríverslunarsvæði ríkjanna þar sem stefnt verði að auknum viðskiptum með vörur og þjónustu, afnámi viðskiptahindrana og greiðari fjárfestingum og fjármagnsflutningum milli aðildarríkjanna. Jafnframt verði kannað hvernig megi skapa sameiginlegan eða samræmdan vinnumarkað með auknu frelsi einstaklinga til atvinnu, búsetu og atvinnurekstrar, gagnkvæmri viðurkenningu starfsréttinda og auknum tækifærum námsmanna, vísindamanna, sérfræðinga og frumkvöðla til að starfa þvert á landamæri.
Samhliða víðtækri fríverslun verði stefnt að sérstökum samstarfssamningi ríkjanna á sviði lista og menningar, menntunar, vísinda og rannsókna, nýsköpunar, náttúru- og umhverfisverndar, sjávarrannsókna, orkumála, samgangna og fjarskipta, leitar og björgunar og öryggis- og varnarmála.
Sérstök áhersla verði lögð á sameiginlega hagsmuni þátttakenda á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum, þar á meðal vernd mikilvægra innviða, hafna, flugvalla og sæstrengja, öryggi siglingaleiða, eftirlit með hafsvæðum, orku- og auðlindaöryggi, netöryggi, vísindasamstarf og sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda.
Við undirbúning viðræðnanna verði m.a. byggt á þeim samningum og stofnunum sem fyrir eru og kannað hvernig Norður-Atlantshafssamstarfið geti tengt saman og styrkt núverandi samstarf, þar á meðal á grundvelli EFTA, EES-samningsins, fríverslunarsamninga EFTA-ríkjanna við Bretland og Kanada, Hoyvíkursamnings Íslands og Færeyja, tvíhliða samstarfs Íslands og Grænlands, viðskipta- og fjárfestingarsamstarfs Íslands og Bandaríkjanna, norræns samstarfs, NATO og samstarfs á norðurslóðum.
Við undirbúning viðræðna skuli utanríkisráðherra hafa samvinnu og samráð við utanríkismálanefnd Alþingis. Utanríkisráðherra skuli gefa Alþingi skýrslu um framvindu viðræðna eigi síðar en 1. janúar 2028.
Greinargerð.
Norðurslóðir og Norður-Atlantshaf verða sífellt mikilvægari í efnahags-, umhverfis- og öryggismálum. Breytt loftslag hefur áhrif á hafsvæði og vistkerfi, ný tækni hefur aukið möguleika til nýtingar auðlinda og aukinn áhugi stórvelda á norðurslóðum hefur gjörbreytt geópólitísku umhverfi svæðisins. Á sama tíma hafa orðið miklar breytingar á alþjóðaviðskiptum. Aukin áhersla er lögð á öryggi aðfangakeðja, mikilvæga innviði, orkuöryggi, matvælaöryggi og viðskipti milli ríkja sem deila sameiginlegum stjórnmála- og efnahagslegum gildum.
Allar þessar breytingar skapa tækifæri fyrir Ísland sem getur haft frumkvæði að því að tengja saman lýðræðisríki, beggja vegna Norður-Atlantshafs, sem eiga þegar í miklum viðskiptum sín á milli og hafa sameiginlega hagsmuni á sviði efnahagsmála, öryggis, rannsókna, menningar, umhverfisverndar og sjálfbærrar auðlindanýtingar.
Fólksfjöldi og efnahagsleg stærð.
Bandaríkin eru stærsta hagkerfi heims. Landsframleiðsla þeirra var um 30,8 billjónir bandaríkjadala árið 2025. Landsframleiðsla Bretlands var um 4 billjónir dala, Kanada um 2,3 billjónir, Noregs um 531 milljarður og Íslands tæplega 39 milljarðar dala.
Samanlögð landsframleiðsla þessara fimm ríkja var því um 37,7 billjónir bandaríkjadala árið 2025. Þar við bætast Færeyjar og Grænland. Landsframleiðsla Færeyja var 27,9 milljarðar danskra króna árið 2024 og landsframleiðsla Grænlands 22,9 milljarðar danskra króna samkvæmt nýjustu þjóðhagsreikningum sem aðgengilegir eru. Þótt Grænland og Færeyjar séu lítil hagkerfi er efnahagslegt og landfræðilegt vægi þeirra langt umfram fólksfjölda, m.a. vegna sjávarauðlinda, landrýmis, staðsetningar og mögulegra auðlinda á norðurslóðum. Í þessum löndum búa samanlagt um 460 milljónir manna.
Markmiðið er ekki stofnun nýs yfirþjóðlegs stjórnkerfis heldur samstarf sjálfstæðra ríkja og samfélaga um að tengja enn betur saman einhver auðugustu og þróuðustu markaðshagkerfi heims sem búa yfir miklum mannauði, traustum stofnunum, réttaröryggi, þróuðum fjármálamörkuðum, mikilli nýsköpun og háu menntunarstigi.
Bæði Ísland og Noregur eru aðilar að EFTA og EES og löndin taka þátt í sameiginlegum innri markaði með ESB-ríkjum. Eftir útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu gerðu Ísland, Noregur og Liechtenstein fríverslunarsamning við Bretland. Ísland og önnur EFTA-ríki hafa einnig haft fríverslunarsamning við Kanada frá 2009. Árið 2026 hafa EFTA og Kanada rætt sérstaklega um uppfærslu hans og mögulegt aukið umfang.
Þá er fyrir hendi formlegt viðskipta- og fjárfestingarsamstarf Íslands og Bandaríkjanna. Árið 2009 var undirritaður rammasamningur um samstarf um viðskipti og fjárfestingar á milli Íslands og Bandaríkjanna sem ætlað er að skapa vettvang til að auka og styrkja viðskipti og fjárfestingar milli landanna.
Hoyvíkursamningurinn milli Íslands og Færeyja var undirritaður árið 2005 og gengur lengra en hefðbundinn fríverslunarsamningur. Í mörgu getur samningurinn verið fyrirmynd að samstarfi ríkja við Norður-Atlantshaf.
Ríkisstjórnir Íslands og Grænlands undirrituðu árið 2022 sérstaka samstarfsyfirlýsingu sem tekur m.a. til viðskipta, sjávarútvegs, bláa hagkerfisins, landbúnaðar, endurnýjanlegrar orku, sjálfbærrar ferðaþjónustu, flugsamgangna, loftslagsmála, líffræðilegrar fjölbreytni, menntunar, rannsókna og menningarsamstarfs.
Mikilvægi Bandaríkjanna og Bretlands.
Bandaríkin skipta íslenskt efnahagslíf miklu meira máli en einfaldar tölur um vöruviðskipti gefa til kynna. Árið 2025 nam vöruútflutningur til Bandaríkjanna 85,5 milljörðum kr. Bandaríkin voru eitt þriggja mikilvægustu viðskiptalanda Íslands í vöruútflutningi ásamt Hollandi (sem umskipunarhöfn) og Bretlandi. Mikilvægi Bandaríkjanna verður enn skýrara þegar þjónustuviðskipti eru skoðuð. Árið 2024 nam allur þjónustuútflutningur Íslands 982,7 milljörðum kr. Þar af námu viðskipti við Bandaríkin 315 milljörðum kr. eða um 32% alls þjónustuútflutnings Íslands. Árið 2025 nam allur þjónustuútflutningur Íslands 1.046 milljörðum kr. Þar af námu viðskipti við Bandaríkin 325,1 milljarði kr., eða um 31% alls þjónustuútflutnings Íslands.
Náið samstarf við Bandaríkin getur skapað mikil tækifæri fyrir Ísland. Bandaríkin eru leiðandi í upplýsingatækni, gervigreind, líftækni, fjármálum, rannsóknum og áhættufjárfestingum. Frjálsari aðgangur íslenskra fyrirtækja að bandarískum markaði og bandarísku fjármagni gæti haft veruleg áhrif á íslenskt nýsköpunarumhverfi.
Samband Íslands og Bretlands er bæði efnahagslegt og sögulegt. Bretland hefur um langa hríð verið einn mikilvægasti markaður íslenskra sjávarafurða. Árið 2025 var Bretland eitt þriggja helstu viðskiptalanda Íslands í vöruútflutningi. Þjónustuútflutningur Íslands til Bretlands nam jafnframt 86,1 milljarði kr. árið 2024 og 95,3 milljörðum kr. árið 2025.
Þjónustuútflutningur til Bandaríkjanna og Bretlands var meira en 401 milljarður kr. árið 2024 og 420 milljarðar kr. árið 2025, eða rúmlega 40% alls þjónustuútflutnings Íslands. En tengslin eru víðtækari. Þúsundir Íslendinga hafa stundað háskólanám í Bretlandi og Bandaríkjunum. Breskar og bandarískar bókmenntir, tónlist, fjölmiðlar og menning hafa haft mikil áhrif á Ísland og náin tengsl eru milli háskóla, vísindamanna og listafólks.
Á síðari hluta 19. aldar fluttu þúsundir Íslendinga til Kanada og byggðu þar upp íslensk samfélög. Vestur-Íslendingar urðu hluti af sögu beggja ríkja og þessi menningarlegu tengsl eru enn lifandi. Kanada er eitt mikilvægasta norðurskautsríkið. Sameiginlegir hagsmunir Íslands og Kanada fara því vaxandi á sviði hafrannsókna, loftslagsmála, siglinga, náttúruverndar, öryggismála og auðlindanýtingar. Þessi tengsl hafa styrkst hratt. Landhelgisgæslustofnanir Kanada og Íslands undirrituðu samstarfsyfirlýsingu í desember árið 2025 um aukið samstarf um öryggi á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum. Í júní árið 2026 undirrituðu ríkin jafnframt sérstakan varnarsamstarfssamning sem ætlað er að auka sameiginlegar æfingar, aðgerðir og samstarf um öryggi norðurslóða. Ísland hefur beina hagsmuni af því að efnahagsleg tengsl við Kanada þróist samhliða ört vaxandi öryggissamstarfi.
Samband Íslands og Noregs nær aftur til landnáms Íslands. Löndin eiga sameiginlega norræna sögu og menningu, skyld tungumál og svipaðar stjórnmála- og samfélagshefðir. Bæði ríkin eru stofnaðilar að NATO, standa utan Evrópusambandsins en innan EFTA og EES og bæði byggja efnahagslega hagsæld að verulegu leyti á náttúruauðlindum, orku og hafinu. Ísland og Noregur eiga einnig sameiginlegra hagsmuna að gæta varðandi fiskveiðar, hafrannsóknir, orkumál, siglingar, loftslagsmál og öryggi á Norður-Atlantshafi.
Menningarleg tengsl.
Menningarleg tengsl og samvinna geta orðið ein sterkasta stoð náins samstarfs landa við Norður-Atlantshaf. Ísland, Noregur og Færeyjar eiga sameiginlegar norrænar rætur. Íslenskar fornbókmenntir varðveita stóran hluta sameiginlegs menningararfs Norðurlanda.
Grænland og Ísland eru nágrannar sem þurfa að rækta mun nánari tengsl milli fólks en verið hefur.
Tengsl við Kanada eru m.a. byggð á sögu Vestur-Íslendinga.
Bretland hefur um aldir verið einn nánasti nágranni Íslands í viðskiptum og menningu og tengsl Íslands og Bandaríkjanna hafa í meira en áttatíu ár verið óvenjulega náin, ekki síst vegna öryggissamstarfs en einnig vegna viðskipta, ferðalaga, náms og menningar.
Flutningsmenn telja nauðsynlegt að huga að því að gera sérstaka Norður-Atlantshafsáætlun fyrir:
* nemendaskipti,
* listamannaskipti,
* kvikmyndir og sjónvarp,
* bókmenntir og þýðingar,
* söfn og menningararf,
* tónlist,
* skapandi greinar,
* samstarf fjölmiðla,
* varðveislu lítilla tungumála og menningarheima.
Menningarsamstarf er fjárfesting í gagnkvæmum skilningi milli þjóða.
Tækifæri í vísindum.
Á sviði vísinda eru tækifæri sérstaklega mikil. Bandaríkin, Bretland og Kanada hýsa marga fremstu háskóla og rannsóknastofnanir heims. Norðmenn og Íslendingar búa yfir mikilli sérþekkingu í sjávarrannsóknum, orkumálum, jarðvísindum og norðurslóðarannsóknum. Grænland er einstök rannsóknastofa fyrir jökla, loftslag, jarðfræði, líffræði og samfélög norðurslóða. Færeyingar hafa mikla þekkingu á hafinu, fiskveiðum, fiskeldi og líffræði sjávar.
Með samstarfi væri m.a. hægt að koma á fót sameiginlegum Norður-Atlantshafsrannsóknasjóði sem fjármagnaði fjölþjóðleg verkefni. Sérstök áhersla yrði lögð á hafið, loftslag, vistkerfi hafsins, orku, jarðvísindi, gervigreind, líftækni, matvæli, heilbrigðisvísindi og öryggi mikilvægra innviða. Samstarfið ætti að byggjast á vísindalegri ráðgjöf og þeirri grundvallarhugmynd að náttúruvernd og verðmætasköpun séu ekki andstæður. Sjálfbær nýting náttúruauðlinda er forsenda þess að þær skapi verðmæti til framtíðar.
NATO lýsir norðurslóðum og norðurhöfum sem svæði sem verður sífellt mikilvægara fyrir sameiginlegt öryggi bandalagsins. Norðurslóðir eru hlið Norður-Ameríku að Norður-Atlantshafi og þar liggja mikilvægar viðskipta-, flutninga- og fjarskiptaleiðir milli Norður-Ameríku og Evrópu.
Hernaðarumsvif Rússlands hafa aukist og Kína hefur sýnt vaxandi áhuga á auðlindum, siglingaleiðum og efnahagslegri stöðu á norðurslóðum. Í febrúar árið 2026 hóf NATO áætlunina Arctic Sentry til að styrkja varnir og fælingu bandalagsins á norðurslóðum.
Þessi þróun breytir stöðu Íslands. Landfræðileg staða Íslands hefur lengi verið lykilatriði í vörnum Norður-Atlantshafs. Svæðið milli Grænlands, Íslands og Bretlands er almennt nefnt GIUK-hliðið (e. Greenland–Iceland–United Kingdom Gap). Þetta hafsvæði skiptir gríðarlega miklu máli fyrir siglingar og varnir milli Norður-Ameríku og Evrópu.
NATO hefur undanfarin ár lagt aukna áherslu á svæðið. Herstjórnarmiðstöðin í Norfolk í Virginíu í Bandaríkjunum hefur meðal meginverkefna að tryggja mikilvægar siglinga- og flutningaleiðir yfir Atlantshafið og Ísland. Noregur og Bretland eru á áhrifasvæði hennar ásamt öðrum norrænum bandalagsríkjum. Í heimsókn hermálanefndar NATO til Íslands í júní árið 2026 var undirstrikað að Ísland væri í hjarta GIUK-hliðsins og mikilvægt fyrir yfirsýn og sameiginlegar varnir bandalagsins. Ísland er ekki jaðarríki þegar kemur að samstarfi um öryggi Norður-Atlantshafsins heldur í miðju þess.
Flest sem lagt er til á öryggissviðinu byggist á samstarfi sem þegar er hafið. Bandaríkin, Kanada, Ísland og Noregur eru norðurskautsríki og NATO-ríki. Bretland gegnir lykilhlutverki í vörnum Norður-Atlantshafsins. Grænland og Færeyjar eru hluti danska ríkisins og þar með innan NATO-svæðisins.
Í maí árið 2026 sendu Kanada, Danmörk, þar á meðal Grænland og Færeyjar, Finnland, Ísland, Noregur, Svíþjóð og Bandaríkin frá sér sameiginlega yfirlýsingu um aukið öryggissamstarf á norðurslóðum. Þar var sérstaklega ákveðið að auka samráð um rannsóknaröryggi, fjárfestingareftirlit og vernd og endurnýjun mikilvægra innviða. Kanada og Ísland hafa síðan styrkt samstarfið enn frekar. Ísland hefur sömuleiðis tekið þátt í samstarfsverkefninu Maritime Security Partnership með Kanada, Danmörku, Þýskalandi og Noregi.
Norður-Atlantshafssamstarfið kemur ekki í stað NATO heldur styrkir það borgaralegar, efnahagslegar, vísindalegar og öryggispólitískar stoðir landa sem þegar standa saman innan bandalagsins.
Sæstrengir, fjarskipti og mikilvægar leiðir.
Efnahagslíf byggist á traustum innviðum sem oft eru ósýnilegir almenningi. Sæstrengir flytja stærstan hluta alþjóðlegra gagna. Hafnir og flugvellir eru lífæðar alþjóðaviðskipta. Orkuinnviðir, gagnaver og fjarskiptakerfi eru forsenda daglegs lífs.
Vegna landfræðilegrar stöðu Íslands liggja þar sérstök tækifæri og sérstök ábyrgð. Samstarfsríkin ættu að móta sameiginlega stefnu um vernd sæstrengja og annarra neðansjávarinnviða, viðbrögð við skemmdarverkum og náttúruhamförum, netöryggi og uppbyggingu öruggra fjarskiptaleiða yfir Norður-Atlantshaf.
Samstarf fullvalda ríkja.
Tillaga um samstarf ríkja við Norður-Atlantshafið byggist á því að samstarfið sé á milli fullvalda ríkja en verði ekki ný yfirþjóðleg stjórnskipan. Samstarfið byggist á milliríkjasamningum sem þjóðþing ríkjanna samþykkja samkvæmt eigin stjórnskipun. Ekki yrði komið á sameiginlegu löggjafarvaldi sem gæti sett þátttökuríkjum bindandi lög án samþykkis þeirra. Þetta útilokar ekki sameiginlegar stofnanir. Sameiginleg ráðherranefnd, þingmannavettvangur, rannsóknasjóður, viðskiptaráð eða skrifstofa gætu verið gagnlegar en vald þeirra ætti að byggjast á skýrum samningum ríkjanna.
Flutningsmenn telja raunhæft að íslensk stjórnvöld geti beitt sér fyrir því að löndin sjö við Norður-Atlantshafið, þar sem búa um 460 milljónir manna, stofni til enn nánari samvinnu á flestum sviðum þar sem sérstaða hvers lands er tryggð og skapað einstakt tækifæri til hagvaxtar og bættra lífskjara fyrir almenning. Til verður hagvaxtarsvæði við Norður-Atlantshafið:
* Svæði þar sem vörur, þjónusta, fjármagn, hugmyndir og að lokum fólk getur farið með sem minnstum hindrunum milli landa.
* Svæði þar sem háskólar og rannsóknastofnanir vinna saman að sameiginlegum verkefnum.
* Svæði þar sem listamenn, nemendur og vísindamenn geta sótt tækifæri beggja vegna Norður-Atlantshafsins.
* Svæði þar sem ríki vinna saman að vernd hafsins og sjálfbærri nýtingu auðlinda þess.
* Svæði þar sem lýðræðisríki beggja vegna Norður-Atlantshafsins standa saman um öryggi sitt.